sunnudagur, febrúar 01, 2004

Hellú

Æj og ó, er ég að verða svona fröken bloggarannanhverndageðaminna, ég sem var svoooo dugleg :) Iss kippi því bara í liðinn.
En málið er það að mamma mín er farin að segja vð alla fjölskylduna að ég sé tölvusjúk og geri ekkert annað en að hanga í tölvunni.
Ég get sko alveg sleppt því að vera í tölvunni, en ég fer í tölvuna ef mér finnst ég ekkert hafa að gera! Okei, lame afsökun... Ég skal bara sýna kerlingunni hvaðan Hildur keypti ölið....
Ég er sem sé að setja sjálfa mig í ehmm... viku bann á msn. Byrja á morgun eða mánudaginn 2. febrúar :o)
Ég skal segja ykkur hvað er búið að gerast síðastliðna 2 daga. Fór til læknis á föstudag og fékk að vita að ég væri með bronkítis eða lungnakvef og barkabólgu, mætti ekkert keppa um helgina sem var fúlt en common ég get ekkert synt í þessu ástandi marh. >>Ég er búin að vera geðveikt duglega að taka lýsi, C-vitamin og steinefna bætiefna töflur. Ætla mér að halda því áfram allt mitt líf. Svona til að halda líkamanum hraustum<<
Kíkti upp í sundhöll á krakkana og var misjafnt hvort fólki var að ganga vel eða illa, en flestir voru að bæta sig. Kíkti svo í gær líka, sama sagan þar. Fór einnig í afmæli hjá frænku minni Hjördísi. Það var svo sem ágætt, geðveikt góóóð terta með brómberjum rauðum og svörtum og bláerjum og jarðaberjum!!!
Hvað er þetta með ber sem gera þau svooooo góóóóð!? Þau eru holl, fullt af andoxunarefnum í þeim. :o) Mmmmm, beeeeerrrrr.....
Ég ætlaði að hitta fólkið í gærkveldi en allir voru svo þreyttir og komust ekki, Begga, Ingunn, Árni og Eiki slepptu því að mæta.
En hann Kjarri beibí kom! Jeij!!! Þessi indæli drengur! Við horfðum með mömmu og Bryndísi á Mulholland Drive og man óh man, þessi mynd er óskiljanleg! Ef einhver ykkar skilur hana viljiði þá gjöra svo vel að útskýra hana fyrir mér!? Við tókum hana reyna reyndar upp svo að ég get horft á hana aftur til að reyna að fatta hana.... úffff, ég skildi hana alls ekki.
Og jámm, ætla að vera ógissla dugleg í dag, byrjaði daginn vel og tók til í herberginu mínu, jeij! Ætla líka að taka námssyrpu og lesa í Nitten Røde Roser, próf í henni á miðvikudag.... hem hem:)

ER þá farin að gera gagn, kíki kannski upp í sundhöll á fólkið, ef ég finn tíma...

Ég vil þakka ÖLLUM sem eru búin að commenta fyrir að commenta, þið vitið ekki hvað mér finnst gaman að lesa comment :)

Og eitt af lokum:
Á ég að setja nýja könnun?!? Þessi hér til hliðar er að verða gömul---->

Svarið í comment :-> ;)
æm átta hír

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim