Hæ hæ hæ.
Það er rosalega mikið búið að gerast síðan ég asnaðist til að blogga síðast. Sat sko ekki auðum höndum þennan júlí og ætla mér sko ekki að byrja á því.Svona til að byrja með þá kom hann Phil 6. júlí og ég hitti hann nokkrum sinnum, hann fór hérna glæsilega hringferð með vinum sínum Antony og Duncan.
Ég eignaðist kærasta, hann Helga Hrafn við tökur á myndinni "Í takt við tímann" sem er "the sequel" af þeirri líka snilldarlegu stuðmannamynd "Með allt á hreinu". Það var 14. júlí. Hratt er farið yfir sögu. Já, svo kom hann Doddi í heimsókn alla leið frá Keflavík um seinustu helgi! Við Begga, Helgi, Doddi og Eiki áttum gott laugardagskveld saman. En því miður þurfti Helgi að fara rétt fyrir miðnætti þannig að fjörið hélt áfram án hans. Afgangurinn gisti saman. Fórum öll út á róló svona frá kl. hálf þrjú til kl. ég veit ei hvað, að sprella um nótt er stuð. Híhíhí, ég fann brúðarsokkaband á aparólu og setti það naturligvis á mig! En jájájájá... Svo er ég búin að vinna líka í þrælavinunni sem er alltaf jafn misskemmtilegt. Jeijj... Það var mikil sól seinustu helgi.
En ég er að pæla í hætta núna. Segi ykkur meira seinna!
Ég ætla að reyna blogga þéttar núna... ég er samt ekkert svo viss að einhver lesi þetta ennþá... Jú kannski Elín Trélím...hehe, meibí nott....
enívei, peace out!


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim