Webbo splash!
Jæja jáááá. Helgin tekur senn enda og ég er ekkert búin að segja ykkur hvað ég er búin að vera braza.Á föstudaginn kíkti ég í sund með Helga mínum og við áttum þar góðar stundir. Ég hitti þar m.a. Kristján og Dodda, sem voru að vinna reyndar, hana Siggu Birnu leiklistarkennara í Hagó og áttum við gott spjall. Og hann Kára úr götuleikhúsinu. Mjög geðþekkur og skondinn drengur sem er í MH.
Eftir sundið fórum við í kveldmat heim til mín og að horfa á sjónvarpið og fleira. Þar á eftir fórum við til Kjarra, Beggu og Emils að horfa á 13 ghosts sem er einkar óskelfileg mynd eftir að hafa horft á hana 2x áður. Við vöktum til klukkan 7 um morguninn. En ég sofnaði samt nokkrum sinnum í sófanum og á rúminu hans Kjartans. Við fórum svo í feluleik í myrkrinu og það er sjúklega gaman að bregða fólki í myrkrinu... Adrenalínflæði dauðans. :P
OG í gær þá fórum við Kjarri, Begga og Emil í vatnsslag fyrir utan húsið hennar Beggu. Við máluðum öll hvort annað með svona litum ég málaði Emil og hann mig. Begga málaði Kjartan og hann hana. Allir voru frekar skrautlegir en þá mest Kjartan, svo Begga svo vorum við Emil bæði frekar snyrtileg svo að við deildum 3. sætinu.
Eg gat undið skóna mína eftir vatnsslaginn sem varð heldur brutal svona undir lokin. Ég fékk t.d. bara 4x að fylla á flöskuna mína meðan sumir fylltu hana 2-3 sinnum oftar!!! Það var líka gott að komast úr rennblautu fötunum í heitt bað.
Um kveldið kíktum við heim til Emils og horfðum á Banger Sisters í staðinn fyrir MTV movie awards. Ég hefði nú alveg viljað sjá alla afhendinguna. En neiii, sá bara Umu Thurman fá sín verðalun og ekkert meira. Þetta er pottþétt endursýnt svo að no harm done. Svo kíktum við heim til Siggu á þær Beggu sem voru í góðu tjilli að horfa á TV. The Mask var í á S1. Vá hvað það er fyndin mynd! Ég elska Jim Carrey! Kjarri gisti svo hjá mér til að passa mig.
Við Sigga fórum í sund í dag og syntum 2,4 km!!! Erum við ekki duglegar!?!? Jú, hélt það... :)
En ég lofa að setja upp comment kerfi í þessari viku, hef ekki tíma núna.
Matur! BÆÆÆ


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim