Asýran
Hæ hæ og hó hó.Sjúklega mikið búið að gerast síðan ég nennti að blogga seinast. Mikið rétt, ég var úti á Spáni í Calella. Alveg dýrðlegt þar. Æfingabúðir að vísu, sem sagt 2 æfingar á dag í 2 klukkustundir í senn. Reyndar mjög skemmtilegt. Það var líka farið á ýmsa staði svo sem vatnsrennibrautagarðinn Water World og líka kíkt til Barcelona í búðir og á Mare Nostrum(sundmót) þar sem nokkrir Íslendingar voru að keppa, m.a. 2 úr KR, Flora og Hjörtur.
Kannski ég skrifi ferðasögu við tækifæri... Hver veit...
Ég er komin inn í MR. Ég mun sem sagt hefja nám við Menntaskólann í Reykjavík haustið 2004. Það leggst bara ágætlega í mig held ég.
Núna um helgina var ég að keppa á AMÍ eða Aldursflokkameistaramóti Íslands í sundi. Keppti ég þar í 200 flug, 100 flug, 100 bak, 200 bak, 100 skrið og 200 fjór, plús 3 boðsund. Bætti mig í flestu, hefði viljað bæta mig meira en það er ekki allt hægt, fékk nefnilega matareitrun 16. júni! Jeij! Alveg hræðilegt og já ekki siðugt rétt fyrir mót... Mér er samt batnað alveg núna svo að þetta er í lagi.
Já og á miðvikudaginn 23. júní fór ég Deep Purple tónleikana!!! Það var alveg frábært! Þótt þeir séu gamlir þá eru þeir helvíti góðir. Þó að í einu sólóinu þá hafi gítaristinn farið út af laginu þá tók örugglega enginn eftir því svo að þetta er "ei ó kei". Og hefði örugglega ekki verið jafn gaman ef að Þórir hefði ekki nennt að halda á mér svo að ég sæi eitthvað af hljómsveitinni endrum og eins :D TAKK ÆÐISLEGA ÞÓRIR MINN:*:*:*;* Þú ert öðlingur af Guðs náð. En já, ég er frekar þreytt núna svo að ég ætla að segja þetta gott í bili.
Sáuði OC?? gmg sko... þessir þættir eru bara í svæsnari kantinum..hehe;) jæja!
Adios


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim