Halló
Hey vá, úpsadeisí, ég gleymdi alveg að tilkynna það að ég er búin með grunnskóla! Jíííhaaa... verð bara menntaskóla pía í haust. Frábært alveg :)Já, fæ svo einkunnirnar á föstudaginn, það verður gaman.Gisti með Beggu, Eika, Valborgu, Helga, Þóru og Kjarra í nótt. Eða í morgun... við sváfum ekkert eiginlega... hehe:) Andskoti getur það verið gaman að vakaaa. Já og fyrr í gærkveldi va rég afmæli hjá henni Elínu minni. Já kvikindið er 16 ára í dag. Til hamingju Elín mín *kossogknúss*! Það var horft á Gladiatress, spilað á rafmagnsgítarinn Jimmy eða er það Jimi?? og hoppað út um glugga. Mjög skapandi og skemmtilegt. Meiddi mig í hnénu, ekkert sniðugt að hoppa út af 2. hæð... Eða var það 1 og hálf?? ok skiptir engu;)
Sjáumst bara, ætla að fara taka mig til...
bleh


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim