yellow!
Jamm og já.Ég er búin að vera keppa alla helgina. Svona á sko að eyða helginni... ehh eða ekki.
Synti 200 flug í gær og bætti kerlingin sig ekki bara um 7 sekúndur! :o) Dugleg stelpa! Ég dó reyndar geðveikt en það skiptir engu, bætti mig alveg um helling engu að síður. Synti líka 100 bringu, bætti mig um 1 sek og vann riðilinn! Hehehe! Ég að vinna bringusundsriðil! HAHAHHAHAHA, ég sökka í bringusundi.... Svo var það boðsund... 8*50 m fjórsund. Ég og Árni fórum baksundsprettinn, Herdis og Eiki fóru bringu, Begga og Pési flugsund, Halla og Kjartan skriðsundsprettinn. Því miður vorum við dæmd ógild vegna þjófstarts hjá einni manneskju, skiptir ekki öllu, við urðum hvort eð er ekki í neinu verðlaunasæti ;)
Og í dag er ég að fara í fermingu hjá henni Hjördísi frænku minni og synda 200 skrið. Athyglisvert að sjá hvort ég nái að keppa...
Ég kveð þá að sinni, frekara updeit á lífi mínu síðar.
Bæbæ


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim