fimmtudagur, mars 25, 2004

I´m the only gay eskimo in my tribe!

Hehehe... já þetta voru nokkrir bekkjarbræður mínir að syngja í dag. Ansi undarlegir drengir sem hafa fettish fyrir yndislegu húfunni minni. En hvað um það.
Ég sofnaði eldsnemma í gær eða kl. 9. Sem er mjög undarlegt þar sem ég er ekki þekkt fyrir að fara snemma að sofa. Hem hem...
Allavegana ég hef ekkert gert mikið í dag fyrir utan það venjulega en ég fór í MS kynninguna og líst mjög vel á skólann. Nema hvað að hann er svo andskoti langt í burtu! Sveiattann... En þetta var mín fyrsta menntaskóla kynning sem ég fer í...
Er þó gallhörð á því að fara í MR, ætli MS sé ekki í 2. eða 3. sæti. Æjj ég er ennþá að velta þessu fyrir mér. Er þó pottþétt á því að fara á náttúrufræðibraut!
Próf úr Englum Alheimsins er á morgun og þarf ég að klára lesa þessa blessuðu bók. Er komin á bls 173 og eru ekki margar síður eftir.
Við sjáumst, blogga meira í kveld ef ég verð þá vakandi eftir æfingu. Hehe:o)

Blessuð.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim