fimmtudagur, mars 11, 2004

vika í IMÍ

Hæhæ og hóhó.
Ég ætla að hafa þennan pistil minn stuttan því ég er við það að sofna. Svo þreytt er ég. Þó er kl. bara hálf 10. Sofna vanalega klukkuna að ganga eitt eins og móðir mín segir alltaf... Ætla bara að vera góð við líkamann minn og lofa honum að sofa vel alla næstu vikuna.
En árshátíð Hagaskóla var haldin hátíðlega í gær. Og rosalega var mikið stuð! Enda Stuðmenn algjörir stuðboltar! Þeir stigu á stokk kl. 10 reyndar. En þá var sko dansað, tjúttað og dillað sér. Ég held að það hafi verið svona 4 mismunandi diskaþeytarar... hehehe ég meina Dj-ar fyrri part kveldsins. Trúi ekki að þetta hafi verið mín seinasta Hagaskóla árshátíð... alveg stórmerkilegt. En já, svo taka við árshátíðir menntaskólanna næsta vetur. :P
Úfffss. Ég er þreytt! Æfingin var líka ekkert spaug hérna áðan. aðalsettið var 3*4*100. Skrið-Aðal-Frjálst... fór aðal á flug og fékk líka þennan skemmtilega krampa í bæði lærin og í ökklann og smávegis í táslurnar. Hvað er málið með mig og krampa þessa dagana... ég verð að drekka meira vatn. Hehehe:P
Ok, ætla að hætta pynta ykkur og sjálfa mig;) Góða nótt beibís kos æm átta hír.
Gute Nacht;)
Já ég fékk 9,1 á þýskuprófinu sem ég tók fyrir 2 vikum síðan, las reyndar ekkert fyrir það. hehe:) bleee;)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim