föstudagur, apríl 02, 2004

Landsbankamót Ægis

Já halló þið öll þarna!
Ég kíkti á söngleikinn Hárið á fimmtudaginn var. Geðveikt flott hjá krökkunum! Bara mjög skemmtilegt :o)
Í dag var ég að keppa, gekk ekkert alltof vel. Meira svona hryllilega.. bætti mig samt um eina sek.. sko gleraugun mín fóru niður á kinnar þegar ég stakk mér og plompuðu svo aftur upp á augun full af vatni og ég synti 200 fjór blindandi! Ekkert alltof sniðugt. Synti baksundið sikksakk yfir laugina og var ég bara heppin að hitta á bakkann yfirhöfuð.. hehe!
Æjj, svo bara massa 200 flug á morgun og sömuleiðis 100 bringu! En ég er farin að sofa, er eitthvað svo dojjdojj...

Hey já, páskafríið er byrjað. Það er samræmduprófslesturinn mikli hefst eftir helgi. Það mun sko vera lesið. Lesið og lært. Lesið, lært og rifjað upp! Kein Problem mein Liebling!

Jajámm, góða nótt.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim