IMÍ
Jæja, síðan ég bloggaði eitthvað af viti hefur margt gerst. T.d. ég bætti mig í öllu nema 50 flug á IMÍ... en ég synti einmitt 50 flug, 200 skrið, 100 flug, 100 fjór, 100 bak, 100 skrið um helgina.Synti:
50 flug á 32,45 en ég á 32,42
200 skrið á 2:24 en ég bætti mig einmitt um 1 sek...
100 flug á 1:13,59 en þar á undan átti ég 1:14,68
100 fjór á 1:15,35 en ég átti þar áður 1:16,65
100 bak á 1:14,68 en ég átti þar áður 1:16,29
100 skrið á 1:04,5 átti þar á undan 1:05,36
Ég varð hvorki sjóveik í Herjólfi á leiðinni til Eyja né á heimleiðinni. Sem er mjög gott!
Við gistum öll í tveimur sumarbústöðum sem voru mjög kósí! Útbúnir sjónvarpi, video, örbylgju, ísskápi og fleiru.. Þar á meðal ''Gömlum Eyja myndum'' og ''Séð og heyrt''! Alveg einstaklega fyndið. Við vöknuðum ætíð snemma, en stundum seint en aldrei of seint.
Jæja já, ég ætla bara að minna á það að 40 dagar eru í fyrsta samræmdaprófið. Örlítil hugvekja. Ætli maður ætti að byrja að skipuleggja hvenær og hvernig og hve miklum tíma ég ætla mér að nota í að læra fyrir þessi allsvaðalegu próf sem alltaf er verið að hamra á við okkur. Mest efnið er fyrir Náttúrufræði og Stærðfræði. Bara Guð blessi alla sem eru að fara taka prófin og bara gúdd lökk að læra beibís. Þú uppskerð eins og þú sáir. Svo að best að fara að rifja upp allt þetta sem ég er búin að læra síðan í 8. bekk... Rosalega er ég orðin gömul eitthvað.
Nóg í bili. Meira en nóg. ;)
Ble


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim