föstudagur, mars 12, 2004

Rímur og e-ð bling

Flatt
Rosalega er vikan búin að líða syndsamlega hratt
Ég segi þetta alltaf en þetta er alveg satt
Til að gera langa sögu stutta þá var mér hálf óglatt
Sem betur fer það bjargaðist er ég á það enda batt



Engu er ég að ljúga
er ég segi að dagurinn var ekki ólíkt og
það væri verið minn líkama að sjúga
Hélt ég fengi flog
Hræðilegur stingur ætlaði mig að drepa.
Hvarf hann sem dögg fyrir sól
eftir ég lagðist upp' í mitt ból



Skrapp ég í skóla
þar næst í sund
Var keyrð af honum Óla
og tók það nokkra stund
Því karlinn ætíð tekur nokkra út úrdúra
Og er við það að festa blund


höf. GibbaGibb




0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim