ÁRSHÁTÍÐIN ER Í KVELD!
Hæ hæ hæ! Ég biðst forláts á því að ég bloggaði ekki í gær. Sökum þess að móðir mín harðbannaði mér að vera í tölvunni þá bara gat ég ekkert bloggað. Varð að láta mér nægja að lesa Gule Handsker bókina... piff... sofnaði reyndar yfir henni í tvígang en mér miðar allavegana eitthvað áfram.Árshátíð skólans míns er er í kveld og verður farið út að borða á undan, eða kl. 6! Ég þarf því að fara gera mig fína. :)
Ég fór að synda með Beggu og Kjarra. Við hittum Gunnarr og Grétar og var mjög skemmtilegt að fylgjast með þeim tveimur synda. Æfingin mín var svona:
400m uh.
200 fjór hv. 20
4 sinnum 100 fjór stað á 2.
300 skrið
400 fjór
50 frjálst
aðalsett:
4(25-50-75-100) einn af hverju sundi... 100m hratt
og svo 350 niðursund.
Og þeir sem eru skarpir að reikna geta séð að æfingin er 3 km. :P
Bæjó er farin að gera mig fína.
p.s. allir inn á nfh.is að skoða myndir úr skíðaferðinni. :)


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim