miðvikudagur, apríl 07, 2004

Hæ!

Afsakið seinasta póst. Mér datt ekkert gáfulegra í hug en að kvarta undan prófalestri.
Ég bara vildi óska að ég væri 10-14 ára aftur. Því að þá þurfti ég ekki að læra allt páskafríið! Gæti bara verið að leika mér úti eða niðri í bæ að borða ís.... en nei nei, núna er ég svo gömul að ég þarf að læra allt fríið undir þessi argvítans samræmdupróf sem eru vita gagnslaus, að svo mörgum ástæðum að ég nenni ekki að telja það upp! Vúhú, ég er komin í HAM! Ekki að ég sé skinka en ... nei ok djók....
Mmmmmjá, ég fékk hita í fyrradag, ekki sniðugt... Er ekkert búin að synda síðan á mánudag, sem er ekki sniðugt heldur. En jámm, skiptir ekki það miklu máli. Það er nú einu sinni frí. Varla frí, og þó það er frí.

Verð víst að fara taka vítamínin mín og læra fyrir prófin. Ohhhh, prófin......

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim