miðvikudagur, mars 03, 2004

SKÍÐAFERÐ

Ég er að fara í skíðaferð eftir klst. eða rútan fer þá, ég þarf sem sagt að fara leggja af stað upp í skóla svo ég komist upp í Bláfjöll. Ég kíkti inn á skíðasvæði.is og er þar slagveður og +4°C. Ekki beint gott skíðaveður. Efast stórlega um að það verði eitthvað skíðaveður í þessari ferð. Ekkert verra svo sem. Það þýðir að ég er öruggari fyrir glannaskapnum í sjálfri mér. Ekki nein skíðakerling but a great daredevil. Myndi prófaskíðastökk óhikað. Jesss kreisí inn a kókónutt sko. Þarf samt að fara extra varlega svo ég lami mig ekki eða jafnvel fótbrjóti. Síðasta sem ég þarf fyrir IMÍ sko. Þarf líka að passa upp á að ofkæla mig ekki né svelta. Er búin að kaupa alveg gríðarlega mikið af mat svo ég svelt allavegana ekki og ég er líka með hlý föt svo ég frýs ei heldur.:=)
Jæja verð að fara núna, við sjáumst á föstudaginn elskurnar. Bless bless

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim