mánudagur, mars 08, 2004

Blessuð öll sömul!

Helgin var einkar fræðandi og skemmtileg. Ég til dæmis fór í Kringluna með henni í Dóru minni á laugardag og fann á mig árshátíðarkjól í Spútnik, þegar við vorum að leita að fötum á hana, en það gekk mjög strembið. Þegar heim var komið þá mátaði hún tvo kjóla af mér og valdi annan þeirra og fer í honum. :)
Og í Kringlunni gerðist margt skemmtilegt, þ.e.a.s. þegar við Dóra hittumst þá er svo mikil spassaorka, brandaraflæði og kjánaskapur uppsafnaður og losnar þetta allt úr læðingi þegar við hittumst. Í La Senza vorum við að máta brjóstarhaldara og eru svona klefar með hurðum, enívei, ég vildi sýna Dóru bh sem ég var búin að máta og kallaði á hana, fór fram líka, og kallaði: ''hey dóra ertu hérna í endaklefanum?!'' Dóra: ''Nei ég er hérna...'' hafði hún ekki bara staðið beint fyrir utan hjá mér og ég ekki séð hana og stóð hún við hliðina á mér að pikka í mig. Vá ég er blind! Konan sem var að vinna þarna horfði á mig eins og illa gerðan hlut. Ég bara dró hana Dóru inn í klefann og sprungum við úr hlátri.... very funny indeed.
Fór aftur í Kringluna í gær með Ingunni og mömmu að kaupa kjólinn og finna bol og skó fyrir Ingunni. Það gekk bara vel:)
Annars þá gerði ég fátt annað en að hanga með vinum og svona þessa helgina og náttúrulega vera í Kringlunni:P

Commentkerfið mitt er dautt og er það ekki gott! :( ég reyndi að kippa því í liðinn í gær en það gekk eitthvað rosalega illa hjá mér. Ætla samt að reyna að bjarga þessu, það gengur ekki að þið getið ekki commentað.

BOP IT!

síja, þarf að frumlesa heilan kafla í eðlisfræði til prófs sem er einmitt á morgun! ;o/

not good
guess i´ll first have some food
here in da hood
blood

lesist svona (guuud-fuuuud- huuuud- bluuuud)
ok? þið bjargið ykkur alveg

fræbbbls;)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim