sunnudagur, nóvember 02, 2003

Nei hææææ!!! :P Þið hér? Hvað kemur til? Núúú? Sollis? Nei marrh bara að buggla... Jæja, ég er búin að vera keppa alla þessa helgi. Var það ekki eins slæmt og ég vildi meina á föstudaginn..
Þrátt fyrir ekkert sérstaka tíma frammistöðu þá gekk mér bara bærilega. Bætti mig í 200 skrið. Fékk gull í 50 flug...

10. sæti í 100 bak Hildur Arna A Gunnarsdóttir 14 ára í Sunddeild KR á 1:18.98 en fór á 1:21.40

Fékk að sleppa við að synda sadista greinina 200 flug...

5. sæti í 50 skrið Hildur Arna A Gunnarsdóttir 14 ára í Sunddeild KR á 30.45 en fór á 31.54

15. sæti í 100 skrið Hildur Arna A Gunnarsdóttir 14 ára í Sunddeild KR á 1:08.08 en fór á 1:11.61

7. sæti í 100 flug Hildur Arna A Gunnarsdóttir 14 ára í Sunddeild KR á 1:14.90 en fór á 1:22.27
ég bókstaflega hata þegar ég er skráð sem Hildur Arna A... HVER KOM ÞVÍ INN AÐ ÉG HÉTI HILDUR ARNA A..? HA? :p

14. sæti í 200 skrið Hildur Arna Gunnarsdóttir 14 ára í Sunddeild KR átti 2:40.19 en fór á 2:34.06 ÉG BÆTTI MIG UM 6 SEK

Í 50 flug lenti ég í 1. sæti!! :P á tímanum 34 eikkvað... Ekki bæting þar sem ég á nú 33.06.. En það skonda við þennan sigur var sá að ég stóð í þeirri trú að ég ætti að synda á braut 4. Og stóð þar af leiðandi við braut 4. En raunin var sú að ég átti að keppa á braut 1!!! Það var búið að flauta stelpurnar upp á pallana þegar hann Mads Clausen yfirþjálfari náði með naumindum að koma mér í skilning um að ég ætti að keppa eftir 2 sek og vera á braut 1!!! Ég ennþá í suttermabolnum mínum, reif hann af mér og æddi í átt að braut eitt... náði að hoppa í anda Matrix upp á pallinn og skella á mig gleraugunum og stinga mér án trafala!!!! :Þ Fokking snilld.. Eiki lá í hláturskasti, hún systir mín, og Lydía, sem ákváðu að koma og hvetja mig, meira en lítið hissa, eins og allir. Svo kláraði ég mitt sund, kom upp úr og var sérstök tilkynning um að fólk ætti að vera á réttum tíma mætt í greinina sína og eitthvað vesen.. HEYRÐU NÚ MIG ÉG LIFÐI Í MISSKILNINGI!! Ekki skamma mig og alla aðra mótsgesti fyrir þessi óheppilegu mistök, sem fóru bara vel! Ég lærði nú samt það af þessu að vera með það alveg 100% á hreinu hvaða riðli og hvaða BRAUT ég á að synda á...

7. sæti Hildur Arna Gunnarsdóttir 14 ára í Sunddeild átti KR 2:49.51 en á nú 2:49.23 !! Jeij ég bætti mig um 28 sekundubrot! jibbí!!:P


Þetta mót var alveg ágætt. Verður síðan ekki meir en lítið gaman að keppa á BIKAR eftir 2 vikur!!! :):):):) Ég keppi í 200 bak og 100 flug og 200 flug.. að ég held.. nema mér skjátlist? Meir um það síðar! Ég ætla að liggja í leti það sem eftir lifir kvölds, á alveg fullan rétt á því eftir þetta púl:P

Lifið heil elskurnar;)

Jippy Kai Jay Mafakka!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim