mánudagur, nóvember 03, 2003

Mig dreymdi í nótt..

líka þetta mikla bull!!!!! Fyrst kom ég heim og Sigrún var búin að klippa niður uppáhaldsbolinn hennar mömmu til að láta utan um allar rafmagnssnúrur því þessar svörtu pössuðu ekki við þær hvítu. Ég fór alveg í panic því þetta var uppáhaldsbolurinn hennar mömmu!!! Og ég reyndi að koma Sigrúnu í skilning um það, en heni fannst hann einmitt alveg rosalega ljótur... mig dreymdi meira..
Ég ætlaði með Bryndísi í sund og það vantaði hnakkinn á hjólið hennar og ég bauðst til að reiða hana og reiddi hana næstum alla leið að sundlauginni og skildi hjólið eftir óvart og labbaði með Bryndísi en hún sagði að ég hefði gleymt hjólinu, ég sneri við og sá þá bekkjarbróður minn vera taka lásin af hjólinu og ætla fara hjóla burt á hjólinu mínu!! Ég alveg: Björn ívar!! Ekki ætlarðu að stela hjólinu mínu? Hann missti lásinn og sagði: Eg verð að fara! Bæ!
Ég geðveikt hissa, horfði á eftir honum hlaupa burt og hjólaði svo að sundlauginni, tók mig líka alveg ógissla langan tíma að opna lásinn. Á meðan komu fullt af 10. bekkingum að tala við mig sem voru á leið í sund. Halla, Helga, Sara, Íris og fleiri!
Ég sagði þeim að hann Björn Ívar hefði verið að reyna að taka hjólið mitt og allir: NEI!i Er þa!? og eikkvað bull.. Þau fóru inn og kom kona með barnavagn og talaði við mig. Hún sagði að barnið henanr segði gagagagúúgúga... Ég alveg já en frábært! Og fór inn. Þar fór ég á æfingu og var alltaf að svindla og skipta um brautir. Og fór svo upp úr og var að fikta í lyklunum í afgreiðslunni og þeir duttu allir og karlinn horfði reiðilega á mig. Ég horfði út um gluggann og sá Kristján með loðnu úfuna sína í úlpunni að laga línurnar ofan í lauginni! Ég kíkti fyrir aftan mig og voru komnir Kjarri, Hólmi, Tumi, Mads og Árni, fóru þeir að tala um eikkerja leiki og ég átti að vera með Einari í eikkerjum boltaleik. Þeir spurðu hvaða boltaleik? Og ég sýndi þeim boltaleikinn, Kjarri tók boltann og rústaði sundlauginni því hann sparkaði svo fast og út um allt og vesen, svo kom japani nokkur og var að skila lyklunum sínum og sunfötunum og lét lyklana hjá þar sem mar skilar handklæðunum og ég fór að reyna að ná í lykilinn og Helga Ómars kom og var í skúringarkonu fötum og setti sápu sem var eins og svampur hjá handklæðunum! Svo bara man ég ekki meira...
Rugl draumur if you ask me!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim