þriðjudagur, apríl 10, 2007

Seinasti dagur páskafrís


Þetta blogg er tileinkað Valborgu. Þar sem hún er dyggasti kommentari sem um getur.
Það er ekki beint af ásettu ráði sem ég sest ekki niður fyrir framan skjáinn og logga mig inn á blogger til að skrifa um allt það sem er að gerast hjá mér. Það er bara skemmtilegra að deila því svona beint með vinum sínum. Straightforward og allt það.
Ok, ég get komið með svona punkta sem voru skemmtilegir:


Janúar
-Nýtt ár, nýir tímar, man að mamma kallaði mig bófa því að ég var að henda froskum út á götu þegar að bílar gætu hugsanlega keyrt hjá. Hildur bófi. Við Bryndís byrjuðum nýja árið saman.
-Líklega e-r svaðaleg partý og vinna
-Skóli, alltaf er það skóli.
-Æfingar fyrir söngkeppni MR, við Valborg, Jandri, Árdís og Tóta tókum þátt með því að syngja Night of Fire með Hinoi Team!
Það var úber últra magnað og skemmtilegt. Komumst samt ekki áfram og kom það mér á óvart. Nei, samt ekki:) Hefði ekki nennt að standa í því að þýða þennan japanska texta og laga hann að íslensku og láta hann meika eitthvað sense. Við vorum bara rosa show :-P
Já, og fyrir þá sem hafa ekki séð mig þá litaði ég hárið mitt dökkt í tilefni keppninnar. Og er búin að halda í þann lit, gaman að breyta til.

Febrúar
-Eeeeemm... hvað gerðist í febrúar, já! Það var MEGAvika á Dominos og ég var að vinna þar eins og mofo. Rosalega skemmtilegt.
-Árshátíð Framtíðarinnar var haldin með pompi og prakt og trylltu... hverjir voru það. Stuðmenn með Birgittu Laukdal menntskælinga... Fyrir árshátíðina fór bekkurinn ásamt enskukennaranum út að borða á Kaffi Reykjavík og svo í skemmtilegt fyrirpartí heim til Inga.
-Ásta Fanney hélt listasýningu og átti afmæli og hélt upp á það með stæl ásamt vinkonu sinni á Prikinu. Þar prófaði ég í fyrsta sinn skot sem heitir FULLNÆGING, er það bara réttnefni á þetta lostæti. Man að barþjónninn var breskur og þegar að ég kom og sagði: "I'd like four orgasms please." Þá sagði hann: "My kinda girl!" Þvínæst var hlegið innilega að þessu öllu saman og dottið í það. Svo var farið eftir afmælið heim til Gunna að horfa á sjóræningjamyndir, sofnaði ég vært einsog mér er von og vísa þegar mér líður vel fyrir framan sjónvarp.

Mars
-Fékk mér Myspace.. held ég...
-Farið var í nokkur afmæli, Björn Friðrik átti afmæli, frændi Þóris átti afmæli og aðalgellan hún Valborg varð 19 ára. Var haldið partý í tómri íbúð. Fyrir utan einn uppblásinn stól og tvo eldhús stóla. Var reyndar skellt afmælinu saman í myndlistasýningu. Ávaxtabollan sló í gegn.
Meira um afmælishátíð Valborgar á síðunni hennar.
- 300
-Ég bauð mig fram í kvikmyndadeild ásamt Dmitry, Dmitri og Arnari og kölluðum við okkur Cinema Spartacus. Ekki mín hugmynd... I'm not that gay! Enívei! Því miður náðum við ekki kjöri, en ég get sagt að ég er næst inn í kvikmyndadeild ef eitthvert þeirra sem náðu kjöri láta lífið... Þúst... OMG!
-Svo var enn skóli, marsmánuður var tími búningapælinga fyrir grímuballið, enda það oft eitt skemmtilegasta ballið!
-Við Þórir hættum saman í góðu og erum vinir núna. En ég er einnig MATCHMAKER! ZOMG.

Apríl

-Grímuball MR, algjörlega klárlega ógeðslega gaman. Hélt fyrirpartý handa bekknum og skemmti fólk sér almennt vel! Totally groovy baby. Við Bryndís tókum okkur til og byrjuðum á smá myndaflippi, þar sem við vorum óttalega flottar. Var ég Lil' Miss Muffet, áhugasamir um að vita hvað það er geta googlað eða tjékkað á myspaceinu mínu. Þar er einnig hægt að sjá skólastelpuna Bryndísi.
-Í páskafríinu er búið að vera mikið um óreglulegan svefntíma og vinnu. Skemmtilegt er að nefna að sama þó að ég hafi sofnað hálf 7 eða 3 þá vakna ég sjálfkrafa 5 mínutur í 12.
-Eitthvert kvöldið tók ég mig til og bauð nokkrum félögum á gamage night og voru spilaðir margir ps2 tölvuleikir. Má helst nefna Burnout 3, Mortal Kombat og Soul Calibur 3. Híhíhí!
Sama kvöld var mér boðið á Poker kvöld hjá Helga og var það voða gaman. Lærði ég að spila og skemmtilegast var að ég var svo mikið "beginners luck" að ég endaði með næst mest á eftir Gunna. Gaman að því, hehe.
-Lítið hefur verið lært og er það skammarlegt í ljósi þess að páskafríin eiga nýtast í það að læra... ER ÞAÐ EKKI KRAKKAR? Tók mig til og fór á bókhlöðuna og svo er ég aðeins búin að læra í efnafræði til viðbótar.
-Svo var meira spilað af tölvuleikjum ásamt Hinoi Team crewinu.. -Jandri þó. Fann ég nýja hlið á scII, sem sagt, keppni í því hver er fyrstur Ring Out! S.s suicide keppni. Burstaði Valborg okkur í því.
-Búið er að vera mikið um djamm og seinasta afmælispartý var rosalegt.
-Fór á Hot Fuzz með Cinema Spartacus, ótrúlega skemmtileg. Nær samt ekki Shaun of the Dead. En hún var voða góð.
-Fór á Björk & Hot Chip tónleikana! Ég hef aldrei verið Björk-fan en hún var voða skemmtileg og Hot Chip voru magnaðir... ég meina, hellisbúi á mökunaríma og litli lemúrinn. (ok, einkabrandari frá helvíti en þið sem vitið hvað ég er að meina megið hlæja)
-Svo voru páskar, fékk ég víst páskaegg nr. 6 en ekki 5 eins og ég hélt. Er ekki búin að opna það ennþá.... Hvað er málið með það..? Enívei.
-Já, og nýjasta nýja er að ég tognaði í bakinu í gær þegar að ég beygði mig asnalega eftir litla frænda mínum. Þurfti ég að beila á brettaferð í dag og húka hér heima með sársaukanum. Ekki gaman það.

Valborg, ég vona að þetta sé nóg fyrir þig og ekki slasa þig í Bláfjöllum.

Ykkar einlæg,
Hildzor

5 Ummæli:

Þann 6:52 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Mér finnst það viðeigandi að eiga fyrsta kommentið ...

Auðvitað var afmælið mitt æðislegt...

Að öðru; ég slasaðist ekkert og ég vil að þú vitir hvað þú ert æðisleg :D

p.s. lemúrinn var því miður giftur.

 
Þann 7:22 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

skemmtilegt blogg... elska það hvað allir eru duglegir að blogga þegar maður á að vera að læra. Þá fær maður afsökun fyrir því að læra ekki-því maður þarf að tjekka á öllu því nýjasta, skiluru;)

En já sjitt grímuballið var geggjað:D Vildi bara sjá fleiri myndir þaðan, hef ekki fundið neina af mér og aroni saman, þannig að minn búningur meikar voða lítið sens svona einn og sér:(

 
Þann 11:48 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Svo bara Berlín!!!

OMG FOKK ASS SJITT FOKK!!!!

p.s. það verður ábyggilega eitthvað skemmtilegt í Berlín

 
Þann 1:14 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

hey jú á meðan ég man þá handleggsbrotnaði ég næstum því í bláfjöllum ... ég legg áherslu á næstum.

 
Þann 4:34 e.h. , Blogger Dóra Björt sagði...

Hæ. Gott blogg.
Þú ert rosa sæt með svona dökkt hár. :) Hvernig fór það annars með Japan og skiptinemismann?

 

Skrifa ummæli

<< Heim