Postur nr. 304! Gleðilegt ár!

Að hugsa sér. Nú er enn eitt árið liðið. "Halló 2007, ætlar þú að verða betra ár? Munu skemmtilegri hlutir gerast á þessu ári heldur en í fyrra?"
Bara ef maður gæti nú spurt svona og fengið almennileg svör, ha!?
Ég byrjaði árið á því að gera mér áramótaheit, það áramótaheit er að hætta borða nammi. Ég held að það sé tiltölulega auðvelt að halda það. Því að ég flokkaði ekki kökur, tertur, ís og sætabrauð þarna með. Kannski ég ætti að gera það. Hafa þetta almennilega áskorun?
Já, segjum það, frá og með deginum á morgun, þriðjudeginum 9. janúar þá ætla ég að hætta borða kökur, tertur og sætabrauð. En ég má borða ís! I can't take that away from myself.
Ég er búin að vera heldur dugleg að mæta í Laugar ásamt og stundum án líkamsræktarböddí Dmitry. Stefni á að nýta þetta árskort mitt mjög vel.
Svo varð ég ýkt pro um jólin og varð stoltur eigandi að lyftingagrifflum og get ég enn stoltari sagt að þær rokka. Mun þægilegra að lyfta með þær heldur en með berum höndum.
Any of whom! Ég er einnig í lærdómsátaki, þar sem ég var ekki of sátt við niðurstöðurnar úr jólaprófunum, þó svo að ég hafi ekki fallið í neinu þá finnst mér að betur hafi mátt fara. Eins og konrektor og fleiri kennarar tönnslast á þá uppskerðu eins og þú sáir.
Að þessu sögðu þá ætla ég að fara læra!


9 Ummæli:
Hahahaha! Það mætti halda að þessi mynd hafi verið tekin á sýrutrippi dauðans! Í það minnsta hlýtur þetta að vera besta myndin af Erlingi sem ég hef séð! Vert að taka það fram að ég var myndasmiður. Ég kalla fram alls konar tilfinningar hjá fólki.
Já, Laugar segirðu. Ætti að fara að stunda það líka. 2007 og allt það.
Ég ætla að vera ógó skemmtó ár!
Tótallí girl! OMGOMOGM!
Stöðvum alnæmi áður en það er of seint...
www.stopaids.com
þú ert eini vinur minn
ég elska þig líka :D
Jæja, þá er kominn marsmánuður, ég er að fara að eiga afmæli og svona, er ekkert búið að skíta á daga þína sem þú þarft að segja alheiminum frá?
Jæja, þá er kominn marsmánuður, ég er að fara að eiga afmæli og svona, er ekkert búið að skíta á daga þína sem þú þarft að segja alheiminum frá?
þetta átti ekki að koma tvisvar
annars er fjórir deilt með sex samasem tveir deilt með þremur og það er námundað að sextíu og sjö sem er hátt hlutfall af hundrað. Það er að segja minn hlutur í þessu kommentsjói er tveir þriðju hlutar.
nema ef þetta kemur tvisvar þá er þetta sex af átta eða þrír af fjórum hlutum og verður að sjötíu og fimm hundraðshlutum.
Ég er ekki að telja þetta með því að fjórir deilt með sjö er ræð tala en ekki um að ræða.
Og þú ætlar þá bara að FARA að læra og ekkert koma aftur?
HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA
ekki það að ég eigi eitthvað erfitt með að ímynda mér það... bara svona smá...
Svo bloggaru EN eyðir póstinum ?
ég bara skil ekki alveg röksemmdina.... ef það er þá einu sinni orð
Skrifa ummæli
<< Heim