mánudagur, nóvember 20, 2006

Basi!

Ég er ýkt dugleg. Byrjuð í World "Laugar" Class. Búin að mæta alveg 3 sinnum síðan ég eignaðist kortið. Vúhú! Sem er ekki ýkja langt síðan, aðeins ein vika.
Mig langar óskaplega að fara þangað núna, en ég ætti heldur að æfa hausakjötið mitt og undirbúa það fyrir efnafræðiprófið á morgun. Sýru-basa jafnvægi. Jaaahúúú! Og vúpdídú!
Gleði hljóðin mín eru takmarkandi. Sounded more like a sneeze.
En hvað um það?
Ég horfði á Sólbjart áðan á milli 4. T og 5. S. Það var einstaklega súr keppni. Það var heldur augljóst hverjir voru sigurstranglegri, þar sem að það voru aðeins 2 í liði 4. bekkjarins. Reyndar vantaði liðstjóra 5. S, en samt var liðið þeirra heilsteyptara og með betri rök. Þar sem að annar ræðumaður 4. T var yfirleitt algjörlega óundirbúin og sagði mest tóma steypu. Skemmti mér nokkuð vel yfir þessu. :-)

Ég sé að það eru enn einhverjir dyggir og tryggir aðdáendur gibbonans með ribbonann.
Yljar það mér um tærnar.

Bið ykkur að lifa vel og ég blogga síðar um ævintýri mín í Laugum/Lífinu/einhverju (líklegast lífinu).

7 Ummæli:

Þann 5:30 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

já, ég held að þetta sé ein furðulegasta Sólbjartskeppni sem ég hef farið á, samt skemmtileg :)

 
Þann 8:24 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Vúpdídú!!!
Borat er súr, en Borax er basískt
Chemistry, the Central Science, bls 623

 
Þann 11:17 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég ylja ekki bara... ónei.
Ég geri einum betur... ég tek hamskiptum...
Afþví ég get það...

-Stebbi

 
Þann 9:24 e.h. , Blogger Unknown sagði...

Uú finnst þér world class aðstaðan ekki frábær? Ég og Jiu Jitsu menn erum búnir að vera þarna um nokkurt skeið, ef þú ert heppin rekstu kannski einhverntíman á mig :D þá getur maður kennt þér réttu taktana

 
Þann 4:33 e.h. , Blogger Einherjinn sagði...

WC er svo glatað pleis...
En burtséð frá því þá er gott að þú sért að hreyfa þig, hvað ertu komin uppí mikið í bekknum? 220kg?
Ari þarf að fara að passa sig...

 
Þann 10:31 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Hérmeð skora ég, Stefán Árni á þig, Hildur Arna í einvígi í Ólympískri réttstöðulyftu.
Sá sem lýtur í minni pokann mun verða gerður skyldur til að snæða eitt eintak af Uniball Penna® og mun honum/henni líka vel.

Þetta finnst mér nú bara við hæfi þar sem þú ert farinn að venja komu þína í þann helgistað lyftinga og heilsuræktar sem við í faginu köllum "laugar".
Viðureignin mun fara fram við sólarupprás á áttunda degi þrídægurs, eins og reglur um einvígi í Ólympískri réttstöðulyftu segja til um.
Ef annar einstaklingurinn mætir ekki á keppnisstað á tilsettum tíma neyðist hinn keppandinn til þess að kveikja í lárviði í innkeyrslu hins í mótmælaskyni.
Reglur teknar af alþjóðlegum vef um einvígi í tiltekinni grein.

Með fyrirfram þökk og von um djamm,

Stefán Árni Jónsson

 
Þann 1:53 f.h. , Blogger Helgibelgi sagði...

HAHAHAHA ROFL

 

Skrifa ummæli

<< Heim