Ævintýrastund
Einu sinni var lítil límbandsrúlla sem hét Hjalti. Hjalti var meðalstór miðað við aðrar límbandsrúllur, en það sem var sérstakt við hann var að hann gat labbað, talað og hugsað (og jafnvel fleiri hluti, hafði ekki tíma til að spurja hann um fleiri hæfileika). Límbandsrúllan var orðin frekar leið á þessu innihaldslausa lífi sem límbandsrúllulífið er (hvað þá ef það er hægt að kalla það líf), verandi eina skrifstofuáhaldið sem gat talað(og f.l.) þá ákvað hann að tala við Sigfríði "eiganda" sinn um daginn og veginn.Hjalti: "Halló Sigrfríður."
Siffa(Sigfríður): "Uhm... halló. Ert þetta þú GUÐ?"
Hjalti: "Nei kona, þetta er HJALTI! Límbandrúllan þín..."
Siffa: "ARGH! AAAAAAAAAARGH! HAAAAAAAAAAAAA?"
Hjalti: "I'm only pullin' yer leg! Þú átt mig ekki tæknilega séð, þú stalst mér af honum Frikka. Ég er þá límbandsrúllan hans Frikka."
Siffa: " ...óóh. *fellur í ómegin* *
Hjalti: "OMG."
Hjalti rúllaði niður af skrifborðinu, heldur óánægður með þetta leiðinlega samtal hans við Siffu. Hann rölti niður eftir ganginum í átt að aðalútganginum, hann var kominn hálfa leið þegar ungur maður steig á hann.
Hjalti: "Afsakið, en þú eiginlega stendur á mér."

Ævar: "Ó, er það? Finnurðu til?"
Hjalti: "Nei, reyndar ekki, en ég er að flýta mér svo þú ert í rauninni að tefja mig."
Ævar: "Ég biðst velvirðingar. Ég bara sé ekkert fyrir þessari grímu og ég get ekki hreyft mig vel í þessari.. spennutreyju."
Hjalti: "Allt í góðu. Bless, bless..."
Ævar: " *froðufellandi* Ahrgrgflööö "
Hjalti hélt göngu sinni áfram í átt að útganginum. Hann var kominn upp að dyrunum þegar að vörður stór og mikill stöðvaði hann.
Vörður: "Hvert eruð þér að fara límbandsrúlla góð?"
Hjalti: "Á vit ævintýranna!"
Vörður: "Gerast ævintýrin utan okkar góðu stofnunar?"
Hjalti: "Það er málið, ég ætla að athuga það."
Vörður: "Hver gaf þér leyfi til að fara héðan af Kleppinum góða?"
Hjalti: "Öhm, ég..?"
Vörður: "Ágætt, því það er eins gott að þú drífir þig út áður en nokkur tekur eftir því að ég var að tala við límbandsrúllu."
Hjalti: "Bless!"

Hjalti labbaði glaður út í sólskinið og upp í bílinn sinn. Rosalega er það erfitt að vera yfirlæknir á Kleppi.


4 Ummæli:
Köttur úti í mýri... o.s.frv.
Hehehe, rosa fyndið, ástin mín. Þú ert sko sannalega skáld í þér. (Mátt samt sleppa því að segja mér sögurnar þegar ég er að drepast úr þreytu uppi í rúmi hjá þér :P)
Já, þetta var tawainai til tunglsins, sko.
Þú ert nú uppáhalds apakötturinn minn! ;)
Skrifa ummæli
<< Heim