föstudagur, maí 13, 2005

Wooohooo!

Hildur og hárið hennar þakka góðar móttökur. Þær eru hæstánægðar með útkomuna og eru mest hissa á því hvað þetta kom ágætlega út.
Sagt er að þeim heilsist báðum vel, sem er rugl og vitleysa!
Hildi kvíðir geðsjúklega mikið fyrir eðlis- og efnafræðiprófinu á þriðjudag. Svo Hildur mun læsa sig inni yfir helgina og reikna af sér rassgatið. Heitust ósk hennar er að öðlast skilning á þessu drepleiðinlega fagi. Hún veit að þetta hefði mátt fyrirbyggja með þvi að reyna meira að fylgjast með í tímum, sem var í hennar augum ógerningur. Og er því kennarinn hennar er ekki beint bestur. En já, þegar Hildur vill eitthvað og ætlar sér eitthvað þá gerir hún það. Nú er bara að sparka ærlega í rassinn á henni svo hún komist í lærdómsgírinn! Guð hjálpi henni. Plís, hún þarfnast þess.

100 bls. eru til prófs, mun henni takast að ná helvítis prófinu... Stay tuned/updated!

2 Ummæli:

Þann 1:25 f.h. , Blogger Unknown sagði...

Það boðar aldrei gott þegar manneskja er farin að tala um sjálfa sig í 3. persónu

 
Þann 3:20 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Æjjj, já, nákvæmlega. Þetta er klárlega vegna prófanna!

 

Skrifa ummæli

<< Heim