föstudagur, maí 21, 2004

Sæl öll

Halló þið, ég vil biðja ykkur að fyrirgefa hvað ég er orðin afkáralegur bloggari.
Blogga alltof óreglulega og sjaldan. Plús ekkert af viti. En jæja, ég skal reyna að verða betri.... Er bara ekkert alltof viss hvort fólk lesi þetta.
Grunar svona að 3 manneskjur leggi leið sína hingað. En ég held áfram alveg þangað til að enginn mætir! HEHE!
Well, bara smá fréttaskot. Jaaah ég synti Aurasund í dag, safnaði áheitum af miklum móði í gær ásamt Ingunni... fengum alveg nokkur áheit. Veiii! Svo leigði ég Scary Movie 3 í gær með Þóri og Beggu. Djöful er þetta fyndin mynd! Illa íslenskuð, váááá, textinn er bara fáranlegur á köflum sko. Humhumhum... bíðið eitthvað fleira??? JÁ! ÉG ER AÐ FARA TIL SPÁNAR EFTIR 15 DAGA!!! JIBBÍÍÍÍ!!!
Ég er að fara keppa á morgun. Þarf að vakna klukkan 7 á laugardegi... blehhh... týpískt! En okayyy sjáumst, þarf að fara sofa.. bæ! gn :)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim