mánudagur, apríl 19, 2004

Ætlaði að toppa hann Þorstein!

Ég ætla mér að toppa hann Steina og skrifa mörg, mörg, mörg, mörg, mörg orð. OG meira segja láta greinaskil til að auðvelda lesturinn. Ég er ekki svona vond að gera bara marga punkta í röð sem er bara böggandi og segja “jæja” og “humm” í svona öðru hverju orði... “haha...” er líka mjög algengt hjá honum.
O nei nei nei... Ég ætla að hafa þetta skiljanlegt. Sko sjáiði, þið eruð alveg að ná að lesa þetta á meðan þið hugsið til þess að það væri andskoti leiðinlegt ef ég myndi skrifa eins og ég greindi hér að ofan.
Umræðuefni dagsins í dag eru tímaþjófar. Þekktustu tímaþjófarnir eru: tölvan, sjónvarpið og svefn. Samkvæmt einhverjari könnun ímynda ég mér. En hvað um það, tölvan er mesti tímaþjófurinn í mínu lífi. Kannisti við það að setjast niður við tölvuna og hugsa: “Ok, ég ætla á msn í svona 10 – 30 mín og svo fara að læra.” eða “Bara tjékka hverjir eru inná... þarf að gera svooo margt samt...”. Þetta held ég að sé algengt vandamál, MSN fíkn!
Ég þekki stúlku sem fór á MSN í fyrsta skipti á ævinni í seinustu viku og hún var heldur betur felmtri slegin hvað þetta var gaman! Veii geta setið við framan tölvuskjá og talað við marga í einu! Víííí!! Svo var hún að passa eitt kveldið og settist fyrir framan tölvuna og ætlaði sér að sitja þar í smástund því henni leiddist., ok þessi smástund varð 2 klukkustundir og þegar hún loksins fattaði það og fór að tjékka á börnunum þá voru þau að horfa á einhverja bannaða mynd! Úpsídúps...
Mamma mín persónulega telur mig vera tölvufíkil dauðans og er alltaf að hóta að senda mig í meðferð við þessari bjévítans fíkn minni. Sjálf held ég að hún hafi ef til vill nokkuð til síns máls, en ég held að ég geti alveg lifað án tölvunnar. Gerði það t.d. í viku þegar netið var bilað.. hemhem. I wonder...
Ég er sem sagt að eyða dýrmætum tíma mínum í að fræða ykkur um tímaþjófa.
Sjónvarpið, sjónvarpið eða imbakassinn eins og gárungar hafa nefnt það tryllitæki sem bæði gleðir og kætir, hryggir og grætir. Ég sá Opruh Winfrey þátt eitt sinn um lítinn 3-4 ára strák sem gerði ekkert annað en að horfa á sjónvarpið frá því að hann vaknaði og þangað til að hann fór að sofa. Sem var bara sick!!!! Barnið lá fyrir framan sjónvarpið og bara glápti. Borðaði þar, tók koppinn sinn og skeit og meig fyrir framan sjónvarpið. Mamman og pabbinn voru með svo miklar áhyggjur að þeir fóru með litla sjónvarpsgláparann í sjónvarpið. Sjónvarpssýki tel ég best að kalla þennan sjúkdóm. Alveg hræðilega, hræðilega sorglegt að barnið sé svona hugfangið af imbakassanum. Ég man ekki hvaða ráð Oprah gaf foreldrunum en ég held að það hafi verið að henda sjónavarpinu eða eitthvað! Ég myndi mæla með því sko.
Svefninn. Reyndar einn af mínum uppáhalds hlutum til að gera. Það getur verið svo gott að sofa! Ohhhh, bara tilhugsunin ein um rúmið mitt og væran svefn færir mér svona gleði tilfinningu og yl. Það er svo notalegt. Ahh.
Svefn er samt tímasóun samkvæmt stöllu minni og líka honum Jay Leno. Svo sagði hann Árni mér eitt sinn frá einhverjum náunga sem hann las um í Lifandi Vísindi og hefur sá maður ekki sofið í 25 ár eða eitthvað!!! Þessi náungi hlýtur að fá koffín í æð sko. Shit bara. Er svefn bara eitthvað andlegt eða líkamlegt? Máski er það hvort tveggja. Líkaminn þarfnast svefns er sagt, en hvað um þennan geðveika gaur þarna? Ha? Er hann bara stökkbreyttur mannapi sem þarf ekki svefn...? Gæti hugsast. Ég veit ekki.
Já, svo er líka námsbækur bölvaðir tímaþjófar. Ég hef farið núna í gegnum nær 3 annir í skóla og litið næstum aðeins í þær skruddur eitthvað að viti fyrir próf og mér gengur bara þokkalega vel í skóla miðað við margt annað fólk. Fæ oftast 9 og yfir í meðaleinkunn. Jeij! Og jújú, ég læri heima. Eða, læri í skólanum heima og rétt fyrir tímana. Næ að bjarga mér. En er þetta slugsa háttur? Veit ekki. Seg mér bara og ég skal meta svar þitt við því. Magir kannast örugglega við það sem ég er að segja, því þetta er dagsatt!
Ég bað föður minn rétt í þessu að nefna tímaþjóf utan þá sem ég hef nefnt hér og hann nefndi lestur klámblaða og skoðun kláms á vefsíðum unglingsstráka, líklegast meira uppá grín en alvöru, lítum samt sem áður á staðreyndir...
Í fyrsta lagi þá hafa örugglega allir strákar skoðað klám og ekki er það neitt það gáfulegasta sem hægt er að nýta tímann í. Ekki satt? Hvað lærir maður af klámi? EKKERT, EKKI SATT? Varla einhvern sérstök “move”, því að allt svoleiðis er stórlega ýkt og ekki líkt alvöru kynlífi á neinn hátt! ‘Kynlífið’ í klámmyndum á við engar stoðir að styðjast eins og í raunveruleikanum, þessar myndir draga upp kolranga mynd af kylífi fyrir ungum drengjum svo að þetta er bara ekkert sniðugt.
Einhverjar stelpur sem eru í ögrandi stellingum með klofið uppglennt eða eitthvað sko... Hafiði ekki séð allar stelpurnar sem sitja í Kringlunni með útglennt klofið? Hehehhehe, nei, hélt ekki! Gerir þetta enginn nema þetta perrafólk. Og að hugsa sér að leika í klámmynd. Guð ég vil ekki fara út í það sko, en ætli ég neyðist ekki til að halda áfram þessum skrifum mínum. Nei, ég get ekki gert það! Ígh.
En þegar öllu er á botninn hvolft þá er spurning sú: Hvað er tímaþjófur? Ertu virkilega að eyða tíma í það sem þú vilt eyða tíma? Er tímaþjófurinn kannski ekki tímaþjófur? Ertu að eflast andlega eða líkamlega við því að eyða tíma í umræddan tímaþjóf?
Eyða tíma... Nýta tíma.... Tími er svo afstætt hugtak svo að þetta er ansi torsvarað skal ég segja ykkur. Ég hef nú reynt að svara þessu hérna ofan og ég læt ykkur um að dæma hvað ykkur finnst.

Litla systir mín er búin að sýna mér síðastliðna 2 daga hinar ýmsu “folk punktur is“ síður og eu sumar þeirra helvíti geðsjúkar eitthvað! Sko það eru einhverjar smá stelpur sem setja allan fjandann inná síðuna sína og það er bara löng runa á þessu þarna til hliðar alveg hellingur upp í svona 200 eða fleiri, ekki nennti ég að telja það. Þetta er til dæmis dæmi um helvítis tímaeyðslu. Finnst mér, ég gæti sko prjónað mér sokka í staðin fyrir að gera gangslausa linka sem sjálfsagt enginn nennir að skoða nema hann sé ekki að fara prjóna sér ullarsokka. Þó reyndi ég í ganni um daginn að fá mér folk.is síðu sem átti að vera: folk.is/laggangur.En laggangur er lárétt að lítt hallandi, samlægt innskotslag í jarðskorpunni; verður til við það að bergkvika þrengir sér inn í jarðlagastafla og myndar nýtt jarðlag sem er samsíða eða nær samsíða þeim jarðlögum sem eru fyrir. Laggangar geta orðið mörg hundruð metra þykkir. Á Íslandi eru laggangar algengir á Suðausturlandi og eru þar oft 1-2 m á þykkt.
Samkvæmt ÍSLENSKU ALFRÆÐIORÐABÓKINNI gefna út árið 1990 í Reykjavík af Erni og Örlygi hf. bls. 345 Sem sagt ekkert dónalegt við það að það sé laggangur, ekkert leggangur! Hvaða veimiltítur eru þetta þarna hjá folk.is... ég sendi meira að segja kvörtun á hendur þeim og þeir hafa ekkert virt mig viðlits... kannski ég sendi þeim hvað laggangur þýðir og þá fæ ég kannski leyfi til að opna þessa skitnu síðu.
Æ jæja, ég er þá bara farin í fýlu út í folk.is crewið...

Meira um það hef ég ekki að segja annað en: GET A LIFE YOU DWEEBS!
Jæja, ég ætla mér núna að tala um THE MATRIX! Nei marh, bara að djóka í yður, þarna brá ykkur ekki satt?? Hildur ÚBERNÖRDI kom líklega upp í huga ykkar við það að sjá þetta. Nei nei, Matriz myndirnar eru góðar. Þó er sú fyrsta lang lang best að mínu mati. Og talandi um myndir sem ég elska... Uppáhalds bíómyndin mín er án efa Robin Hood: Men in Tights. Drepfyndin mynd sem Mel Brooks leikstýrði. Ég sko hlæ alltaf yfir henni, það klikkar ekki. Svo finnst mér líka Three Amigos vera snilldarmynd. Þetta eru reydnar allt grínmyndir. Uppáhalds hryllingsmyndin mín er þá örugglega GOTHIKA. Hún er bara hrein og tær snilld. Þeir sem hafa lesið bloggið mitt hljóta að kannast við bíóferð okkar Berglindar á þá kvikmynd. Ahh good times, marh fór í bíó hvern sunnudag. Svo þraut peningaflæði.
Það þarf að vinna til að eiga pening en ég er bara fátækur námsmaður. Sem minnir mig á það að launin í unglingavinnunni er hreinn skítur á priki. Ég vil big bucks ekkert undir 100 þús. (til gamans má geta að launin í unglingavinnunni fyrir 6 vikur er 83 þús eða eitthvað, sem sagt ekki stór fjárupphæð).

Ég er farin að hlakka svo mikið til að fara til Spánar í sumar í æfingabúðir að það er ekki fyndið! Ég er meira að segja búin að kaupa mér æfingabikiní. Prufu synti það á æfingu áðan. Og reyndist það mér bara vel! Þetta bikiní saman stendur af toppi er með fylgdi ljótar strákaleggjabuxur (boyleg suit) svo að ég skellti mér á eina netta stráka sundskýlu, eða ekki með svona ljótum boyleg heldur bara plain svarta.
Æfingabúðirnar í sumar verða haldnar í bænum Calella við Costa Brava ströndina. Bærinn er 50 km norðan við Barcelona minnir mig og verður æft í 50 m nýrri upphitaðri útilaug sem er staðsett rétt við hótelið!!!!!!!! Æfingar verða síðan á 4 brautum í tvisvar sinnum tvær klukkustundir á dag. Sem er ávísun á það að við öll munum verða fallega brún eftir þessa ferð. Þetta er meðal annars ein af ástæðunum sem ég keypti mér umrætt æfingabikiní. Sem by the way er úr ENDURANCE efni! Sumir vildu meina eitthvað annað.. *hóst* ÁRNI OG EIKI *hehe hóst*, ég er með sönnun þess að þetta er Endurance efni... það er stimplað á ljótu boyleg buxurnar! :)
Það er komið svo mikið sumarskap í mig að það er alveg yndislegt. Vakna alltaf við sólina og vekjaraklukkuna mína og vakna alveg eldhress! Vorið hefur þessi áhrif á mig. Alveg dýrðlegt. Sumardagurinn fyrsti er til að mynda á fimmtudaginn kemur og þá nær víst sumar tilhlakkan hámarki og ég byrja að ganga í stuttum pilsum. Nei, nei... segi svona bara. Ég klæði mig eftir veðri. Skynsöm stúlkukind.
Ég ætla þá að gefast upp núna því að ég veit að ég þarf að taka mér marga klukkutíma í að skrifa jafn langt og hann Steini... En það fór út um þúfur og þeir sem lásu þetta eru vinsamlegast beðnir að commenta. Takk fyrir að lesa:) :P

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim