fimmtudagur, apríl 15, 2004

She is looking fine!!! From behind!!!! - Pablo Fransisco

Að sjá þetta! Tíminn bara flýgur frá manni eins og honum sé nákvæmlega sama.
Þá styttist í það, samræmduprófin fara senn að hefjast og þá styttist enn frekar í að skólinn klárist. Sem þýðir að það sé að styttast í að ég klári grunnskóla, þar af leiðandi hefur það þá þýðingu að sumarið fari að láta sjá sig og í sumar verður gaman... Hehehe. Nóg um það. One thing at a time Hildur!
Lærði þokkalega mikið um páskana. Sem þýðir að ég hefði getað lært meira ef ég hefði drullað mér til að læra meira. Rifjaði upp þó ýmislegt svo að páskafríið var ekki ein stór tímasóun.
Ég er veik í dag. Ég ældi nefnilega í gær... OG var með hita í morgun og illt í mallanum svo að ég sleppti því að fara í skólann. Vil ekki smita alla þar af einhverri helvítis pest!
Já, í gær var gaaaaaaaaaaaaaaaaman! Fór í skólann, jeij, fór líka aftur í skólann í aukatíma í íslensku og í alvöru það var jeij. Marh lærði svo mikið af því að ég hefði alveg verið til í að fara í samræmdaprófið í íslensku í gær sko. Hefði örugglega fengið yfir 9 á því! :)
Þá er það orðið ljóst, ég er orðin uppistandsfíkill. Ég ligg t.d. yfir Pablo Fransisco, sem er svo fyndinn að hann fær mig til að gráta. :P Úr hlátri þ.e.a.s. Hvernig er hægt að vera svona óstjórnlega fyndinn. Einnig er Seinfeld Bara snilli og Eddie Murphy bara Guðinn sko. :o)

Já, ég er búin að bæta við og breyta linkum hérna til hliðar. Þið megið bjóða þá velkomna hérna. Allir segja: 'Hæ nýju linkar!' *vink vink*

Jæja, ég er farin núna. Síjah latah!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim