mánudagur, janúar 05, 2004

Það er ókeypis að B-R-O-S-A!

Gúðann daggg!
Fraulein Hildur er búin að vera drepast úr túrverkjum og svengd á fyrsta skóladegi nýs árs sem var einmitt í dag. Núna líður henni ágætlega þar sem hún situr og er að maula í sig m&m og lakkrís:) íbúfen slær alltaf á túrverki og matur á svengd en já...
Ekkert að læra heima fyrir morgundaginn og ekkert að gera í kvöld... Vonandi verður frú Bíbí með sundæfinguna á eftir, við söknum hennar sárt! Óska henni gleðilegra jóla og farsæls nýs árs og megi hún ekki fá sýkingu í nýrun aftur á lífsleiðinni!!!
Ég rakst á þessa síðu um daginn þar sem þú getur séð hobbita nafnið þitt og álfanafnið þitt með því að slá inn First name og Last name. Mitt hobbita nafn er Prisca Boggy-Hillocks og álfanafn mitt er Isilwen Amandi! Rosalega áhugavert eitthvað... finnst ykkur ekki? :)
Phil fékk jólagjöfina frá mér í dag og er hann hæst ánægður og búinn að hlæja mikið yfir henni Icy Spicy Leoncie og disknum hennar Radio Rapist! :P Verði honum að góðu. Ég fékk hans gjöf um daginn og var það bókin Bored of the rings? eitthvað með þeim frá Harvard Lampoon, er að lesa hana og lofa Dildo Bugger góðu!! hehe :o)

Sjáumst píps ;)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim