HAHAHAHA!!!
Pabbi var að segja mér svo ógeðslega sanna sögu að hún varð fyndin...Fyrir svona þremur árum var hann greyið pabbi minn að keyra heim úr vinnunni á Miklubrautinni og það var náttúrulega fullt af bílum en tók eftir bíl á hinni akgreinninni sem var alveg rosalega gamall, skítugur, ryðgaður og ljótur. Bílinn leit út eins og hann væri bólugrafinn af ryði! Hann var svo skítugur og ljótur að hann tók sérstaklega eftir honum. Og þegar hann keyrði fram úr honum þá horfði hann á ökurmanninn rannsakandi augum. Hann átti von á því að þetta væri einhver eldri einstaklingur sem hafði orðið undir í lífinu en þá var þetta svona á að giska 20-25 ára strákur og var alveg jafn skítugur, bólugrafinn og óásjálegur eins og bíllinn! Pabbi hafði svona 10-20 sekúndur til að virða piltinn fyrir sér og á þessum stutta tíma þá varð hann vitni af því að pilturinn teygði sig í eina af fjölmörgum bólum á hálsinum og kreista hana og sprengja þannig að það sá bara allt gumsið koma út úr, náunginn virti það fyrir sér ánægður á svip og sleikti það af puttanum og keyrði á braut glaður. Pabbi á hinn boginn borðaði ekkert þetta kvöld.
HVAÐ ER AÐ SUMU FÓLKI!!!!! OJJJJJJJJJJJJJJJJJ!!!!! (ég þarf að æla...)


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim