And our time is runnig out....
Hullo people!!!:PAfsakið hlé.
Sko sko sko er bara búin að vera rosalega upptekin... hehe:) Í gær var kirkjuferðin og fór ég í mínu heví flotta skotapilsi. Er það bara ég eða fáið þið líka samviskubit að biðja ekki meira til Guðs og þakka honum fyrir að hafa leyft okkur að fæðast á Íslandi því aðeins eitt barn af hverjum 32.000 sem fæðast inn í heiminn eru svo heppin að fæðast á Íslandi!!! Fyrir vikið tel ég að það væri sniðugt að lofsama Guð fyrir að leyfa manni að vinna í þessu happdrætti sem það er að fæðast á klakann :)
Afmælið hennar Sigríðar Johns, frænku Ingilínu Johns, var fagnað með tilheyrandi veislu! Svona til að muna í hverju ég var: Mini pils lillað, rock-punk sokkabuxurnar, bleikar legghlífar, bleikur bridget jones´s diary hlírabolur og fjólblá gegnsæ skyrta. Pizzur og smákökur og gos var spísað. Horft var á Idol og manað sig upp í að horfa á Darkness Falls sem er ógeðsleg mynd. Vorum all nokkrum sinnum búnar að hætta við og horfa bara á Jingle All the WAY! en Neibb, við þraukuðum. Sátum í boga inni í stofu og ég á endanum með lappirnar á Ingunni við hausinn á mér og fæturnar hennar Dagmar í kjöltunni. Svo öskruðum við svo mikið að sumar voru með sviða í hálsinum! Ég var ein á meðal þeirra. Svo var hár fléttað á flestum af Stínu stuð. Ég yfirgaf húsið klukkan eitt eða svo.
Hljóp heim í fjallgöngu- og vetrarskónum mínum, kom inn í hlýjuna og geðveika jólastemmingu mamma og pabbi voru að hlusta á jólalög og gæða sér á öli eftir jólatónleika sem þau voru á. Fékk ég þær fréttir að Sigrún og vinkonur hennar höfðu verið að horfa á upptökur af mér síðan ég var ný 4 ára og litla systir mín bara nokkra daga gömul. Ég hafði víst verið algjört rassgat og rosalega athyglissjúk því litla barnið fékk alla athyglina. Hafði skutlast í ballettbúning og hoppað í hjónarúminu og eitthvað sniðugt. :) Æjjj það er svo erfitt að vera miðjubarn... híhí.
Ingunn benti mér á eina frétt af mbl.is:
Konunglegur draugur festur á mynd
Það hefur lengi verið fullyrt að það sé reimt í Hampton Court höllinni í suðvesturhluta Lundúna og sá orðrómur hefur nú fengið byr undir báða vængi. Varðmenn í höllinni urðu í október nokkrum sinnum varir við að eldvarnahurð hafði verið skilin eftir opin og þegar myndir úr öryggismyndavél voru skoðaðar kom skyndilega í ljós vera, sem virtist vera klædd í miðaldabúning, og lokaði dyrunum. Á meðfylgjandi mynd, sem höllin sendi frá sér í dag, sést þessi vera í dyragættinni. Hampton Court höllin var byggð á 16. öld og var m.a. dvalarstaður Hinriks 8 Bretakonungs.
Hver segir svo að draugar séu ekki til!?!? ;)
Ætla að fara gera eitthvað af viti. Það hjálpar alltaf að halda geðheilsunni. :o)
Mwewehhehehhehehe:)
Hasta'la'vista...


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim