þriðjudagur, desember 30, 2003

hæmms

Ég er ekki upp á mjög marga fiska í dag. Er lalasin og ekki viss hvort ég sé með hita eður ei. En allt bendir til þess að sú sé raunin!
Er búin að einhverfast í allan dag... Fór í Sims, sem er tölvuleikur... hehe. Hef ekki farið í hann í rosalega rosalega rosalega langan tímaaaaa. Fékk ógeð af honum í 8. bekk...
En jámm, ég vil bara kúra upp í sófa og horfa á imbann því ég ætla sko ekki að vera veik á morgun! Það er aðeins eftir rúmlega einn dagur af árinu 2003 og ég ætla ekki að missa af þeim degi!
Alveg skelfilegt hvað tíminn líður annars hratt. Ég er bara nýbyrjuð að blogga, árið 2003 gekk í garð fyrir svona hálfu ári, þeir sem áttu afmæli í janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október og nóvember eru eiginlega allir nýbúnir að eiga afmæli :P ok ok líka desember... etc.!

En er það ekki hverju orði sannara að segja:
Time flies when you are having fun! ;)

Ég er bara farin núna, hef bara ekkert skemmtilegt að gera!!!!!! Bara ekki neitt!!
Sendið mér sms ef þið viljið kæta mig:)

Gleðileg jól og farsælt komandi nýtt ár...

Ykkar Gibba Gibb:=)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim