fimmtudagur, desember 18, 2003

Já hallúúú! Wazapp pípúll!?!?


JÓLAPRÓFIN ERU BÚIN! JÓLAFRÍ AÐ BYRJA Á MORGUN EFTIR KIRKJUFERÐ SEM HEFST KL. 10:40!
JÓLIN, JÓLIN, JÓLIN KOMA BRÁTT! OG JÓLASKAPIÐ KEMUR SMÁTT OG SMÁTT!

Enskan í dag var skítapítalétt! Labbaði fyrst út úr prófinu... hehe :o)
I love it when I do that... heheh ;e)

Loksins eru þessi prófahrina á bak og burt. Bíð spennt eftir niðurstöðunum og ennþá spenntari eftir JÓLUNUM!!!!!!!!

Hef ekkert meira að segja nema að ég gleymdi að minnast á að ég var búin að kaupa mér líka þetta heví flotta skotapils og labbaði út og fattaði að þegar ég kom heim að þjófavörnin var ennþá á því!!! Reiddist náttúrulega helvítis ljóskunni sem afgreiddi mig. Gerði mér leið upp í Kringlu í gær og pípaði þjófavörnin þegar ég labbaði inn og gaf fólk mér illt auga, en ég strunsaði beinustu leið að búðarborðinu og var þjófavörnin fjarlægð burt. Sama stelpan stóð þarna geðveikt heimskuleg og gaurinn sem vann þarna sagði henni að biðjast afsökunar og benti henni á að hún væri alger ljóska, ég gat ekki verið meira sammála honum!!! :)
En það sem vekur mestan áhuga minn er það að af hverju pípaði ekki þjófavörnin þegar ég labbaði út úr búðinni daginn sem ég keypti pilsið??? Virkar þjófavörnin bara þegar marh labbarinn?? :-S

úpsís, þarf að fara út í búð fyrir móður mína!
síja beibís;)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim