sunnudagur, desember 14, 2003

Urgh

ÉG HATA AÐ HJÓLA Í HÁLKU!! ER BÚIN AÐ DETTA TVISVAR Á EINUM SÓLARHRING!
EKKI SKEMMTILEGT! :'(
Hann elsku Hafsteinn er búinn að benda mér á það að þá á bara ekki að hjóla í hálku, he has a point en ég baraaa hjóla út um allt, hvernig sem viðrar! Í skólann, í sund, út í búð, you name it... en jáh, ég er kannski bara geðveik. Eða hrjáist af sjúkdóminum cycleholismi... eins og hann Haffi orðaði það. :) LOL..heheh!!!!

Var í afmæli hjá Ingilínu Johns! Náttfatapartý. Devitos pizzur og gos og snakk og nammi og myndin Identidy. Rosalega er það scary mynd... ég hjúfraði mig upp að Dagmar allan tímann!! Og hélt á Magnúsi. Magnús er sko eðla.... Og svo var slúðrað og smá trúnó og sonnah.
fórum í leiklistarleikinn. Dregnir miðar til að ákvarða leikfélaga og líka dregnir miðar með tilfinningu og staðsetningu og drógumst við Dagmar saman og áttum að leika vonbrigði og jólaboð! Æfðum þetta stuttlega, Dagmar var sífellt að hlæja sig í krampakast út af mér!!! Greyið engdist af hlátri. Við lékum þetta þannig að ég kom í boð til hennar, og vonbrigðin fólust í því að það var eðla í matinn. Dagmar hafði þá verið búin að kaupa of mikið að jólagjöfum og ekki haft tíma til að finna nógu góðan mat. Á æfingunni lét ég eðluna á pönnu og henti henni upp í loft. Dagmar lá á gólfinu og hló... :) ææjjj hún er soddan krúttína.

Ég er víst með afar sérstakan tónlistarsmekk, af stelpu að vera. Lang flestar vinkonur mínar hlusta á píkupopp og popp... ég er öll í rokkinu. Hlusta mest á klassískt rokk.
Var t.d. með MUSE diskinn minn í Walkmanninum mínum og krafðist þess að fá að spila hann en engin þeirra tók vel í það. Dirfðust meira að segja að segja þetta ömurlega leiðinlegt. Mér sárnaði svoldið. EN jámm, misjafn er smekkur manna. Ég er bara rokkari og þær poppararr.... urgh. :P :)

Ég gisti með Beggu í gærnótt og lærði með henni í dag undir próf. OG viti menn! Begga fílar MUSE! Hún er svona soldill rokkari:)
Hey hey. Minns er farin að sofa, þarf að læra fyrir stærðfræðipróf á morgun!

Gute Nacht

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim