laugardagur, október 18, 2003

VÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ!!!! DJÖ HATA ÉG 10-11!!!!!!!
Haffi hafði alveg rétt fyrir sér. Við Ingunn lögðum leið okkar í 10-11 í gær og helvítis fagga helvítin létu okkur taka af okkur töskurnar! Ég spurði þá 3 (Þeir voru fokking 3 að passa dyrnar) hvort allir hlytu þessa meðferð og þeir sögðu skýrt: JÁ.
Ok.. ég varð örlítið minna móðgaðari, en gjörsamleg féllust hendur þegar gaurarnir hleyptu einum náunga inn með töskuna sína og alles!!!!!!! ÉG ÆTLA SKO FRAMVEGIS AÐ BEINA MÍNUM VIÐSKIPTUM Í MELABÚÐINA! ÉG VIL EKKI VERA STIMPLUÐ ÞJÓFUR OG RUPLARI, ÞETTA ER BARASTA ÓVIÐEIGANDI OG DÓNASKAPUR AÐ MÓÐGA FÓLK SVONA... Hins vegar vil ég lýsa ánægju minni á ísbúðinni þar við hliðina á. Ég ætlaði að lána Ingunni fyrir litlum barnaís en þá var engin heimild kortinu mínu, og konan sagði að ég mætti koma seinna og borga!:D:D Ég gaf henni nafn og símanúmer og átti ég að borga sem fyrst bara:P ;) Ekki málið fólk:) Ég borga í dag eða á morgun:) (reyndar þá ætla ég að escorta ingunni þangað og láta hana borga ísinn sinn) En svona eru almennilegar sjoppur! Treysta viðskipta vinum sínum! Ekki líta á alla sem einhverja helvítis ræningja og ruplara! Það er líka svo lágkúrulegt að stela, mér dytti það ekki til hugar! Annars þá ætla ég að læra örlítið og fara svo í dósasöfnun með elsku sund-KR-ingunum:)
Love yah all!

Hasta La Vista, bebeeeee...

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim