sunnudagur, október 19, 2003

Guten Morgen!

Slæt vrei flóikð!
Það var fnít í duasónnsfönini í gær. Slikdðui þttea anrnas? Þið ætutð að hfaa sikilð þteta:)
Við Svava og Kjartan vorum saman í hóp í gær í dósasöfnuninni og heimtuðum dósir til styrktar sunddeildarinnar á Víðimel, Reynimel og Grenimel. Kjarri og ég tókum eina hlið gatnanna og Svava hina. Á tveimur götum náði Svava að safna einum svörtum ruslapoka en við Kjarri a.m.k. 20 ruslapokum! Svo á Reynimel þá lentum við á honum Ómari þjóðfélagsfræðikennara, fengum við 2 poka frá honum að mig minnir:P En skemmtilegt jájá.. Svo er hið alræmda draugahús eða nornahús þarna á Reynimel, það er alveg hryllilega óhugnalegt. Alltaf eitthvað fyrir gluggunum á því. til dæmis gardínur, svartur plastpoki, pappír eða eitthvað annað. Shitterinn, Kjarri þorði ekki að fara í húsið og dingla og biðja um flöskur, þannig að ég fór EIN og dinglaði. Ég var líka svoldið smeyk, en fór samt sem áður, Tröppurnar ýmist brotnar eða mosavaxnar. Og útidyrahurðin ekkert augnayndi heldur, 5 cm drullulag á gluggunum, lakk og málning að flagna af henni. Bjallan var svona ljón með tunguna út og einmitt þegar ég ýtti tungunni niður til að dingla, voru einhverjir kattar andskotar í slag fyrir aftan mig, án þess að ég vissi, og kom svona "Meeeeeowwwrrrrr, *hvæs hvæs*!!! Ég náttúrulega alveg að pissa á mig af hræðslu. næstum búin að detta niður tröppurnar aftur á bak + missti úr nokkur hjartaslög...(helst til ung að fá hjartaáfall), hélt að það væri verið að steikja kettina eða bjallan gæfi frá sér svona hljóð. ÞVÍ MÉR BRÁ SVO MIKIÐ! Ég beið í sirka mínutu í sjokki eftir að einhver svaraði en enginn kom til dyra, kannski virkaði ekki kattarslagsbajallan... WHO KNOWS? ÉG hélt að það væri verið að steikja kettina eða bjallan gæfi frá sér svona FREAKY hljóð. Annars gekk afgangurinn áfallalaust, nema það voru sum hús með kúkalykt eða mikla reykingalykt sem var ekkert sérstaklega huggulegt.
fór um kvöldið til Kjarra ásamt Beggu og Höllu, við leigðum spólurnar LILYA-4-EVER og 'Death becomes her' eða 'Eilífðardrykkurinn'. :)
Þeir sem hafa séð myndina LILYA-4-EVER vita að hún er bönnuð innan 16 og af gefnu tilefni og marrh áttar sig á hvað marh er heppin að eiga heima á Íslandi. Greyið stelpan sem er 16 ára átti heima í Sovétríkjunum fyrrverandi, mamma hennar yfirgefur hana í byrjun myndarinnar og fer með Rússa til "Stata" eða USA. Svo lýgur svokallaða besta vinkona hennar upp á hana svo að allir leggja hana í einelti og kalla hóru, drulslu, dræsu og fleira rugl. Fyrir var hún að sniffa lím með vinum sínum og reykja og dópa. Svo neyðist hún til að stunda vændi fyrir peningum. Hún hittir gaur sem hún verður ástfangin af og hann platar hana til að fara til Svíþjóðar og er hún hneppt þar í kynlífsþrælkun úti í Malmö. Og fyrirfer hún sér á endanum þegar hún sleppur burt.
VIÐ ERUM SVO hEPPIN AÐ BÚA Á ÍSLANDI Í VELLYSTINGUM! Þetta er frekar sorgleg mynd en hún sýnir hvað er að gerast sums staðar í þessum heimi.
Hin myndin var fyndin, Goldie Hawn, Meryl Streep og Bruce Willis léku sér saman í henni. Lang flestir hafa séð þessa mynd.

Svona var laugardagur ...

Bleble

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim