Sveitt mega sáttir vinna
Über duglega ,sveitta vinnukonan Hildur, vann erfiðisvinnu í tvo og hálfan tíma í dag. Hún sló grasið, hún hreinsaði beð, hún ryksugaði allt húsið og hún tók til. Þar á eftir fór hún á tveggja tíma sundæfingu til að kóróna erfiðisvinnuna. Eftir æfinguna áttaði hún sig á því að hálsbólga er byrjuð að læsa sínum illu klóm í háls hennar. Henni er illa við hálsbólgur, þær gera lífið leitt og hálsinn sáran(lo. sem endar á -an). Fram undan bíður meiri erfiðsvinna, því hún á að grafa 40 cm djúpan skurð sem er á frekar stóru svæði. EIN! Það verður púl. Sem er kúl.En ég hringdi í Dóru áðan, og bað hana að segja mér eitthvað orð. Hún sagði banani. Ég að sjálfsögðu googlaði orðið og komu þá skemmtilegar myndir upp:




Bananar eru hollir börnin góð.


2 Ummæli:
Bananar eru svona hollir:
BANANAR Næringarefni í 100 g
Orka:
kJ 375
kkal 90
Næringarefni:
Prótein 1,2 g
Fita 0,3 g
Mettaðar fitusýrur 0,1 g
Einómettaðar fitusýr 0,036 g
Fjölómettaðar fitusý 0,083 g
Omega-3 fitusýrur 0 g
Trans fitusýrur 0 g
Kólesteról 0 mg
Kolvetni 20,2 g
Viðbættur sykur 0 g
Trefjaefni 1,8 g
Alkóhól 0 g
A vítamín 8,8 µg
Retinol 0 µg
D vítamín 0 µg
E vítamín 0,21 mg
B1 vítamín 0,04 mg
B2 vítamín 0,05 mg
Fólasín 14 µg
B12 vítamín 0 µg
C vítamín 11 mg
Kalk 5 mg
Fosfór 28 mg
Magníum 26 mg
Natríum 2 mg
Kalíum 347 mg
Járn 0,35 mg
Góður punktur. :o)
Skrifa ummæli
<< Heim