Stafsetningarstríð
Upp á síðkastið hefur Þórir sýnt mér StarWars myndirnar og hef ég tekið eftir lélegri stafsetningu í þýðingum... Eins og þegar hann Svarthöfði segir við Loga Geimgengil: "Gangtu til liðs við myrkuöflin, þau eru miklu sterkari" og "Gangtu til liðs við mig og við munum stjórna og vera bestir.." eða eitthvað álíka. En segið mér, síðan hvenær segir maður "gangtu" í staðin fyrir "gakktu"? Uhm, já, alveg rétt... ALDREI! FEIS! :P Hohoho. Þetta fór bara nett í taugarnar á minni. Bara ég og mín gríðarlega stafsetningar árátta. EN... Rétt skal vera rétt.Ég get ekki leynt kæti mínu fyrir því að vera fara í Rocky Horror Picture Show party. Er búin að finna frábært "outfit": Hvít blúndunærföt, sokkabönd og háir hvítir sokkar, hvítir háir skór, undirpils og jafnvel eitthvað fleira til að vera í að ofan, mér skilst að einhverjir drengir ætli sér að vera þarna svo já, ÉG ER MEÐ KVEF og þarf eitthvað til að vera í að ofan... :-P
Laða blúndur fram kvenleika stúlku og kynþokka hennar? Eða er þetta bara fyrir ömmur?
Ég meina, blúndur rokka og ég elska mína nýju hvítu sokka.


Ég meina, þetta er ekki ömmuklæðnaður að mínu mati. Sjáiði hana ömmu hérna fyrir ykkur í þessu outfitti og ná að, hvað skal segja, pull it off? ;0)

Eitthvað til að hugsa um...


2 Ummæli:
ég fer alveg hjá mér...
Þú veist heilmargt! :)
Skrifa ummæli
<< Heim