Strange, bewunderlicht.
HOLA.Í dag er ég reit þennan pistil, var sól, 7 gráður á Celsíuskvarða úti fyrir og jafnvel ágætis veður til að blogga.
Í gær fór ég að sjá Stjörnustríð: Hefnd Siths. Frábær mynd í alla staði. Þar sem ég hef ekki séð allar myndirnar þá kom mér ýmislegt á óvart! Þar á meðan tengsl Lukes og Leiu. Flabbergasted I was (Yoda er fyndinn)... HEHEHHE! Lítill grænn gaur sem er 800 vetra. Og í undarlega góðu formi miðað við það.
Á morgun fer ég í krullueftirlit, kannské það sé best að kalla það krullu-upplyftingu, þið megið ráða. Hár mitt er slétt, afar slétt.
Undarlegt hvað það er rólegt núna hjá mér, engin próf, engin vinna, engar sérstakar skyldur sem skapa streitu, bara fljóta í gleðinni og frjálsleikanum.
Ég ætla á sundæfingu í kvöld.
Verið heil og sæl.
May the force be with you!



0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim