laugardagur, maí 21, 2005

Tjaldferð í Þjórsárver

Það var bara nett gaman í tjaldferðinni. 3. bekkur tók sig til og fór í tjaldferð núna eftir prófin á suðurland. Tjaldferðir í maí eru ekki sniðugar hitafarslega séð, því að ég er nokkuð viss um að flestum var frekar kalt um nóttina. Hvaða vitleysingi datt þetta í hug!? :P En ég er mjög fegin því að "V.I.P" húsið var opið í nótt svo að fólk gat hlýjað sér og passað að frjósa ekki í hel. Ég skemmti mér þó frábærlega og tók það heila 6 bjóra til að ég fyndi á mér. Klöppum fyrir því...(I guess)
Ekki það að ég sé drykkjubolti, ég næ þessu ekki alveg sjálf einu sinni. Rosalegt þol, he? Nei, ok, en það var rosa gaman að tjalda og geðveikur stemmari í kringum það allt saman.
*geisp* Er búin að sofa í tvær klst. í nótt og er frekar mygluð. Kannski ég leggi mig í smá stund... How about that?

En hér er skemmtilegur brandari:
Q: Why is six afraid of seven?
A: Because seven ate nine! (7-8-9)

Oh, þetta er yndislegt!

Mig bráðvantar vinnu. Gemmér vinnuuuu.
Nei, fáðu þér bara eina sjálf!
Bööh :o(

1 Ummæli:

Þann 9:22 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Taktu næsta laugardag frá! :D amm?

 

Skrifa ummæli

<< Heim