hjillúh, gríon man!
Vegna fjölda áskoranna, (einnar reyndar) þá ákvað ég að blogga. En hvað um það.... Ég vildi gjarnan vilja komast að því hvers vegna í andskotanum ég get ekki sofnað snemma. T.d. í gær ætlaði ég að vera geggt kúl á því og sofna 10.... emmm nei sofnaði einhvern tímann svona hálf 12! Eða eitthvað. Lá bara uppi í rúmi andvaka. Lá bara og hugsaði um hvað hafði gerst um kvöldið og hvað ætti eftir að gerast og hvað er búið að gerast núna í janúar og hvað var gert um helgina .... sem sagt var rosalega mikið hugsað og það myndi eflaust halda fyrir ykkur vöku ef þið væruð að hugsa svona mikið. Svo talaði ég lengi vel við Guð og fór yfir mánuðinn með honum í huganum. Ég tala ekki nógu mikið við hann og þakka honum. A.m.k. einu sinni í viku. Ætti kannski að vera meira trúrækin, hvað ef ég myndi deyja á morgun og Guð væri rosalegri fýlu út í mig fyrir að biðja ekki meira til hans og þakka honum fyrir og ég væri bara send beint til helvítis! :S Ekki skemmtilegt :( En þar sem ég vona að helvíti sé ekki til þá ætla ég að reyna bara að lifa heiðarlega, það er sagt að heiðarlegu fólki farnist best. Því líður best andlega held ég.Fór á morgunæfingu, en í mjög stuttan tíma... vitiði hvers vegna.... ef ekki þá skal ég segja ykkur hvers vegna og það er þess vegna að ég er að verða veik enn á ný! Jibbí eða þannig! Alveg dæmigert.... alltaf fyrir stórmót eða mikilvæg mót þá þarf ég að næla mér í stórhættulega sýkingu eða í einhverja umgangspest.... var með lungnabólgu fyrir Bikar, hræðilega inflúensu fyrir IMÍ í fyrra.... Hver lagði á mig bölvun? Eða er ég bara svona viðurstyggilega óheppin?!?!?! Ótrúlegt ekki satt, þið hugsið eflaust úúfff greyið stelpan a lenda í þessu.... en hey, hver er búinn að gera mér þetta???? Því sá og hinn sami má vinsamlegast aflétta þessu því ég tel mig ekki eiga þetta skilið.... Og hana nú!
Jamm og já, þar sem ég er komin með pest, í barkann og lungnapípuna.... þá hef ég ekkert að gera.... Ekkert að læra heima(ég er ekki að kvarta!:P), þeir sem ég umgengst mest eru að synda as I write, mér dettur ekkert í hug.... Ég er að pæla að dúða mig vel upp og kíkja á gríslingana synda, það er alltaf jafn FUN! Múhahahahaaa.... Svo get ég gert eitthvað skemmtilegt! Að hugsa sér, ég hef ekki bloggað svona langt í dágóðan tíma... eða þið vitið...:)
Er farin að gera eitthvað æsispennandi svo að ég hafi eitthvað að blogga um merkilegt.... sjúmst beibesss! ;)
Hey ég rakst á þennan kött! Hann er svo skemmtilegur... endilega kíkið á hann.... :D


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim