laugardagur, janúar 24, 2004

WAYNE'S WORLD! WAYNE'S WORLD! PARTY TIME! EXCELLENT!

Ég biðst velvirðingar á bloggleysi undanfarna daga. Sofnaði í gærkvöldi með geðveikt samviskubit yfir hvað ég gerði lélegar tiltraunir til að blogga. (Samviskusami bloggarinn hildur) T.d. á fimmtudag var ég búin að logga mig inn á blogger en hafði ekkert til að skrifa um. Hefði samt getað skrifað ýmislegt um kvöldið, en ekkert sem ykkur kom við fyrir utan að segja ykkur að við (flestir úr A. hóp) vorum að hjálpa Bíbí að flytja í íbúðina hans Kristjáns Hauks.... Mikið stuð það var. Spilað á gítar og etið Macintosh. Og okkar handboltakappar töpuðu fyrir Slóvenum... Pælið í því! Einn gaurinn hét Pungartik, eða -tnik, hvað er að foreldrum þessa manns...?
Já og í gær, hvað gerði ég í gær... já nú man ég! :P Tók próf í setningarfræði sem ég lærði btw ekki baun í bala fyrir : S gekk reyndar mjög vel en ég veit um eina villu... úff. Skólinn var búinn fyrr í gær vegna Verzló kynningarferðarinnar, sem ég fór ekki í! Nennti iggi. Og hvað hvað hvað... jáh, fór á æfingu sem var heldur styttri en vanalega því að landsleikurinn var í handbolta.
Aðalsettið var 9*200- 3 á 70% hraða - 1 aðal á 90% hraða, 2 á 70% - 1 aðal á 90%, 1 á 70% hraða - 1 aðal á 90%hraða. Ég synti aðalsundið flug og fór fyrri á 3.03 og seinni á 3.18.... og fór líka einn 200 fjór... hitt var bara skrið og bak.
Fékk svo Eika, Árna, Kjarra og Pétur í heimsókn og leigðum við Wayne's World og Hot Chick. Takk strákar fyrir kósí kveld;)
Hvað varðar daginn í dag þá fer ég afmæli til Kobba. Á eftir að kaupa gjöf....
þannig að við sjáumst bara! Ég er farin að versla.... bæbæ....

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim