laugardagur, janúar 17, 2004

Hallóóó!

Ég vaknaði galvösk klukkan korter yfir 7 í morgun! Fór með pabba mínum upp í sundhöll Hrafnarfjarðar(Hafnarfjarðar...) og fór í upphitun fyrir Stórmót SH... Keppti í 100 bak og bætti mig um 1 og hálfa sekúndu! Munaði engu að það hefðu verið 2! Ég kom bara svo illa í bakkann... En já. Stuttu síðar synti ég 50 flug og bætti mig líka! Átti 33.06 en á nú 33.04! HEHE! Újehh... Þvílík megamassa bæting!
En ég er búin að finna tvífara hans Björns Ívars bekkjarbróður míns! Geðveikt fyndið... en jámms. Það er Hringvöðvapartý hérna á eftir og mætir liðið á bilinu 4-6 hingað... og verður svo djammað fram á nótt eftir úti grill.... hehe:)

Sjáumst bæjo...

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim