Þeir 6 eða 7 stigahæstu einstaklingar í A hóp í einstöku sundi á Bikar öðluðust þátttökurétt á mótinu 31. Internationale Kelkheimer Weihnachtsschwimmen í Þýskalandi og höfðu einnig náð 80% mætingu á æfingar í vetur.
Við Berglind, Ingunn, Unnur, Ingibjörg, Eiríkur og Árni Stefán ásamt Bíbí flugum föstudaginn 5. des frá Leifsstöð. Allir voru spenntir fyrir ferðinni og ég engin undatekning þar! Þegar við lentum á Hahn í Frankfurt sama kvöld þá tók á móti okkur vingjarnlegur hópur fólks. Begga og ég vorum settar hjá indælli fjölskyldu. Við fengum alltaf brauð og te í morgunmat og sváfum á satíni og fengum meira að segja í skóinn. Þrátt fyrir takmarkaða ensku kunnáttu Olgu, mömmunnar og Philips (9), sonarins þá var Richard, pabbinn, bestur í enskunni og var gott að hafa a.m.k. einn enskumælandi þarna á heimilinu. Sundlaugin var mjög flott og fengum við Íslendingarnir alltaf ókeypis að borða í matsalnum sem var í litlu herbergi rétt hjá anddyrinu. Mér brá stundum allsvakalega þegar ég var í sturtu því ekki ófáum sinnum löbbuðu strákar inn í sturturnar... Ég er ekki viss hvort að þetta voru sameiginlegar sturtur en samt, þetta er ekki eitthvað sem ég er vön! Okkur gekk öllum bara mjög vel að keppa rökuðum saman verðlaunapeningum, alls fengum við 13 gull, 15 silfur og 5 brons. Bikarar voru veittir fyrir efstu 3 sætin í boðsundi og fékk stúlknasveit KR tvo bikara, lentu tvisvar sinnum í 3 sæti. Við skoðuðum jólamarkaðinn í Frankfurt sem var meira en lítið glæsilegur og fórum út á borða á stað sem minnti á skip eða dýflissu! Mjög góður matur. Og á mánudeginum kíktum við á gamalt rómverskt virki eða varnarstöðvar og fræddumst um það og fleira, kíktum loks aftur á jólamarkaðinn og skoðuðum okkur um í Frankfurt og versluðum smávegis, fórum á safn að borða, fengum að smakka eplavín og var misjafnt hvað fólki fannst um drykkinn, mér persónulega fannst hann ekki góður! :p
Lögðum svo af stað heim aftur þarna á mánudagskvöldið 8. des.
Vil ég þakka förunautum mínum fyrir frábæra ferð!


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim