Hi...
Jæja já, búin að keppa alla helgina. Komst víst í úrslit í gær í 50 flug og þurfti að bruna upp í Hafnarfjörð klukkan 20 mínutur yfir 5 (vissi ekki af því fyrr en þá) til að ná að synda í úrslitunum! Og sko mína! Fór á 32.72 eða eitthvað! Bætti mig síðan um morguninn, og fór undir 33! Í fyrsta skipti á ævinni... yay!:P Gekk sko líka bara æðislega í dag, synti 200 bringu! HEHEHE! Og gekk það bara vel, svo vel að ég komst í úrslit, ég, bringusund.... Bwaahahahahahaha.... :) úff en steeeeeeeeeeeeikt. Ég er frú flugsund sko ekki bringusund. En já fór á 3.12 í fyrra skiptið og í úrlitum á 3.10; bæting... fyrir ykkur sem eruð ekki sleip í reikningi sko...;) Og í 200 bak fór ég á 2.46 sem sagt 2 sek bæting frá mínu gamla og bætti mig um 2 sek í 100 fjór... fór á 1.16 :) Árni og Eiki fóru á 1.13 og 1.12! Djísuss, brjálæðingar og bestu vinir mínir! Geri aðrir betur :o)Nýja könnunin vekur mikla lukku hjá alþýðunni.... takk fyrir að kjósa, atkvæði ykkar skiptir máli;) (væri ég ekki þrusu alþingismaður??:P)
Ætla að gera í íslensku, kennarinn setti sjúkt mikið fyrir!!! Argasta garg... :(
Bææææjooo
e.s. læt eina mynd frá því á laugardeginum fljóta með.... ég veit samt ekki hvað Heiða var að gera í þessari stellingu yfir mér... grunar að hún væri að forðast myndavélina....


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim