þriðjudagur, janúar 13, 2004

Halluuu

Ég gleymdi víst að minnast á það í gær að ég fór á morgunæfingu á mánudagsmorgun! Vááá og ég vaknaði bara frekar hress kl. korter yfir 5 um nóttina... klæddi mig og lallaði upp í vesturbæjarlaug. Í alvöru talað, morgunæfingar! Bara það sem vantaði upp á til að gera mánudaga ömurlega þreytta. Var þó með undrum óslöpp allan daginn.
Það var geðveikt vel mætt á morgunæfingu! 14 manns eða eitthvað, og var æfingin bara skemmtileg. ólíkt því sem var í fyrra marh, *gubb gubb*, svo hljótiði að kannast við restina, nei bíðið ég fór á Subway og fékk mér 12" bræðing svona 25 mín fyrir æfingu og var nærri búin að æla á fingu því ég var svooooo pakksödd!
Úffff! Svona smá heilræði: Ekki belgja ykkur út af mat rétt fyrir æfingu, það skapar bara vandræði....
Æfingin var ágæt þótt ég væri ótrúlega þung á mér, búin að vera það reyndar seinustu tvær vikur og er komin með alveg þvílíka minnimáttarkennd gagnvart Eika og Árna því þeir synda hræðilega hratt og stundum ef maður er fyrir Eika þá syndir hann bara yfir mann en það er nú önnur saga! Kristján Haukur var með æfinguna og var það skemmtilegt, stundum sakna ég hans alveg óskaplega! Þótt Bíbí sé frábær þá er hún enginn Kristján Haukur!
Ég þarf víst að fara drífa í því að skrifa ferðasöguna um Þýskaland, Jóhannes forðmaur nei formaður :-S hvernig gat ég skrifað þetta <--- en allavegana þá hringdi karlinn í mig og bað mig um að skrifa ferðasögu, mig grunar að þetta muni fara í sundbókina sem við fáum á uppskeruhátíðinni.... En jámm, það verður lítið mál!
Best að byrja á henni svo að ég verði einhvern tímann tilbúin með hana í tíma!
Ó já, það er foreldradagur í dag svo að ég er í fríi og gisti með fröken Berglindi :) Labbaði heiman frá henni áðan og var það svoldið röff því veðrið úti er ekki skemmtileg, rok og skítakuldi... en já núna er ég inni... mmm skárra!
Sjáumst!

Þetta blogg var postað sérstaklega fyrir formannsdótturina Höllu Helgu :)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim