föstudagur, nóvember 28, 2003

Mjög skemmtilegur dagur í dag! :)
Föstudagar eru nær undantekingarlaust skemmtilegir. Að mínu mati. Við Ingunn lásum leðurblökufyrirlesturinn okkar loksins í dag, allir í bekknum okkar voru farnir svo að kennarinn var sá eini sem var eftir og hlustaði okkur lesa. Hripaði hún niður ansi lítið svo að okkur hlýtur að hafa gengið vel!!! :)

Ég er komin með óskalista fyrir afmælis og jólagjafir:
Háir sokkar; röndóttir eða með flottum teiknimyndum á.
Húfa.
Body butter.
Maskari.
MUSE diskurinn.
Matrix Reloaded DVD diskurinn.
Nudd.
og svo mætti lengi telja....
allar aðrar gjafir eru þó vel þegnar:) met það mikils að fá e-ð yfir höfuð(er ekki að tala um húfur sko...)

Sonur þjálfarans míns náði að rota sig í gær og fá heilahristing! Greyið barnið! :S

En lifið heil elskurnar. Passið að rota ykkur ekki, the world is not a safe place!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim