:) Halló halló!
Jæja já!Ég hef ekki farið á eina einustu sundæfingu alla þessa viku! Jeremías minn sko!
Það var sko frí á mánudag og þriðjudag, svo tók stór hluti af 10. bekk þátt í stuttmynd sem var skotin í Haskólabíói og þann dag bar bara pottaæfing...
ÞAÐ VAR ÆÐISLEGT 60's ball í skólanum í gær, fimmtudaginn 20. nóvember! Vá... rosalega voru margir flottir. Þórir sonur Signýjar kennara vann besta outfittið en hann var einmitt í rosalegu Elvis Presley dressi með tilheyrandi sólgleraugum og hárgreiðslu:) OG Hugrún freestyle pía vann flottasta kvennafötin :)
Allar bekkjarsystur mínar rosalega fínar:) Ég var líka í æðislega flottum kjól að mínu eigin mati sem amma hafði saumað á sjálfa sig fyrir nær hálfri öld. Stóra systir mín gerði hárgreiðsluna í mig, hún prófaði sig bara áfram... Og sá hún um förðun nær alla... :o)
Kíkið endilega á skólavef okkar Hagskælinga, margt sniðugt þar að finna, eða í náinni framtíð, alveg nýr vefur sem bekkjarbrósarnir mínir sjá um að hanna ;) híhí
Síja beibís;)


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim