Hæ hæ:)
Jæja já. Ég gerði mest lítið dag í ljósi þess að ég er með snert af sýkingu í annað hvort vinstra lunganu eða barkanum eða jafnvel undir tungunni, ég satt að segja veit það ekki. En ég vona að það skýrist á mánudag!
Svo fer ég til Þýskalands með Árna, Beggu, Eika, Ingibjörgu, Ingunni og Unni að keppa á Jólamóti, 12 dagar þangað til og 11 dagar í afmælið mitt :P
Las í allan dag næstum... Harry Potter ofcoursee..... er byrjuð að virkilega hata Dolores Umbridge!
En allavegana þá hef ég lítið annað að segja en ég fór í bíó með systu og kærasatnum hennar og bestu vinkonu hans að sjá Mystic River. Leikstýrð af hinum berømte Clint Eastwood.... Þrusugóð mynd, mæli með henni! Sorgleg þó, líka fyndin, skellti upp úr allavegana 7x
hehe :D en góð er hún :)
Ég er farin að lúlla, nenni ekki að vaka alla nóttina :P


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim