Hræðilegasti dagur lífs míns var laugardagurinn 8. nóvember 2003!
Það kom í ljós að ég er ömurleg, leiðinleg, hræðilega slæm og vonlaus manneskja. Þar fór allt sjálfsálit fjandans til!!!! Ætli ég leggist ekki í þunglyndi, sjálfsvorkunn og offitu. Missi alla vini og drepi fjölskyldu mína úr leiðindum og setjist ofan á köttinn minn þegar ég er komin með svo feitan rass að ég sé ekki sætið sem ég ætla að setjast í.Yea.. good times.. eða hitt þó heldur!
Annars átti Inga Þórey afmæli og Ingunn hélt upp á afmælið sitt. Ég bjó til spilastokk, keypti maríuhænu spennu og nauðgaði fótunum mínum með hárrífitækinu hennar stóru systur.
Allir sem styðja þá tillögu að ég hoppi fyrir björg bjallið í mig.....
Ó já, meðan ég man...
Dvergakast á sunnudaginn kl. 13:00 í bakgarðinum hjá Jóa Fel.
Nauðsynlegur útbúnaður; klossar, vettlingar og piparkökur. Keppt verður í þungum og léttum dvergum.
ATH! Allt káf bannað. Dvergar eru útvegaðir á staðnum. Skráningargjald kr. 5000, afhendist í öllum helstu strippbúllum Kópavogs.
Vona að ykkur líði betur en mér!!!
Góða nótt


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim