mánudagur, nóvember 03, 2003

Konur sem keyra.

> Þegar ég var á leiðinni upp Ártúnsbrekkuna í morgun leit ég til hliðar og
> þar var kona á splunkunýjum BMW. Hún var á svona 120 km hraða með andlitið
> upp í baksýnisspeglinum og var á fullu að sminka sig með meikup-græjurnar
í
> sitt hvorri hendi og annan olbogann á stýrinu.
> Ég leit fram á veginn eitt augnablik og næst þegar ég leit á hana var
> bíllinn hennar á
> leiðinni yfir á mína akrein og samt hélt hún áfram að mála sig eins og
> ekkert sjálfsagðara.
> Mér brá svo mikið að ég missti ferðarakvélina mína á roastbeefsamlokuna
> sem ég hélt á í vinstri hendinni.
> Í panikkinu við að afstýra árekstri við konuhelvítið og ná stjórn á
> bílnum sem ég stýrði með hnjánum, datt
> gemsinn minn úr hálsgrófinni og ofan í kaffibollann sem ég var með á
> milli fótanna. Það varð til þess að brennheitt kaffið sullaðist á Orminn
> Langa og tvíburana tvo. Ég rak upp öskur og missti við það sígarettuna úr
> munninum og brenndi hún stórt gat á sparijakkan og ég missti af mikilvægu
> símtali!
> Hvað er að þessum #%&!$# kellingum?

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim