Historien om frøungerne
Lærdómur lífsins nr. 1Það var einu sinni hópur froskaunga sem ætluðu að koma á fót kapphlaupi. Markmiðið var að komast upp á topp hás turns.
Margmenni hafði safnast saman til að fylgjast með hlaupinu og hvetja keppendurna.....
Síðan var hlaupið ræst
Í sannleika sagt:
Enginn áhorfandanna trúðu því í raun og veru að froskaungarnir gætu klifrað upp á topp turnsins.
Það eina sem heyrðist voru setningar eins og:
"Oh, svo krefjandi!!! Þeir munu áreiðanlega ALDREI komast alla leið!"
eða
"ekki sjens á að þetta takist, turninn er alltof hár!"
Froskaungarnir hættu, hver á fætur öðrum.....
-nema einn.... sem fljótt kleif hærra og hærra...
Fólksmergðin hélt áfram að hrópa:
" Þetta er allt of krefjandi!!!! Það mun enginn geta þetta!!!"
Fleiri og fleiri froskaungar urðu þreyttir og gáfust upp.... bara einn hélt áfram hærra og hærra....
HANN VILDI HREINT OG BEINT EKKI GEFAST UPP!
Fyrir rest höfðu allir hinir gefist upp á að klifra
-fyrir utan þennan eina frosk, sem eftir mikið erfiði náði toppnum!
Nú vildu hinir þátttakendurnir auðvitað fá að vita hvernig hann fór eiginlega að því að vinna þvílíkt afrek - og ná í mark!
Þá kom í ljós...
AÐ SIGURVEGARINN VAR HEYRNARLAUS!!!!!!
Og lærdómurinn af þessari sögu er:
Hlustaðu aldrei á fólk sem er neikvætt og bölsýnt...
vegna þess að það tekur frá þér þína fallegustu drauma og óskir sem þú berð í hjarta þínu!
Hugsaðu alltaf um kraft orðanna, af því að allt sem þú heyrir eða lest
hefur áhrif á gjörðir þínar.
Þess vegna:
vertu alltaf... JÁKVÆÐUR!
Og fyrst og fremst:
Vertu hreint og beint HEYRNARLAUS þegar einhver segir við þig að þú getir ekki látið drauma þína rætast!
Hugsaðu alltaf:
ÉG SKAL GETA ÞAÐ!
Hafið þetta í huga... alltaf :) ;)


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim