Það var KR! Það var KR! Óólé ólé óléóeólei!
Go KR! Go KR! Go! Go KR! Go KR! Go! Go KR! Go KR! Go! Go KR! Go KR! Go! Go KR! Go KR! Go! Go KR! Go KR! Go! Go KR! Go KR! Go!HALLÓ SMALLÓ!!!
2. keppnisdagur Bikars er búinn og ég synti 200 flug! Hehehe, ætla að lýsa því hvernig þessi 8 ferða ferð var í smáatriðum. Þeir sem hafa synt 200 m flugsund í keppni ættu örugglega að kannast við eitthvað af þessu en svona var þetta:
Stakk mér til sunds, óþægilega þurr í munninum. Synti fyrstu 50 metrana vel, tók góðan sporð, rann hreinlega áfram í gegnum vatnið og var samferða öllum hinum 3 stelpunum.
Seinni 50 voru þyngri, en ekki óviðráðanlegir, herti mig aðeins og hvatti í sjálfa mig til dáða í huganum.
Þriðju 50 voru eins og það hengu í það minnsta 5 kg lóð á hvor hendinni um sig, og það var eins og að eitthvað afl væri að dæla mjólkursýru í fæturna mína með illkvittnislegum afleiðingum(ÉG VAR AÐ 'DREPAST').
Í örvæntingu skammaði ég líkamann minn og sagði honum að drattast áfram og þú ætlir að klára sundið þótt það kæmi sér mjög vel að stoppa núna í næsta bakka.
Tók frekar hraða snúninga allan tímann og ágætar spyrnur. Seinustu 50 voru vítiskvöl!!! Þar sem nokkrir félagar mínir voru komnir mín megin að hvetja mig(KR stendur oftast við 1. braut, en ég var að synda á 4.) OG heyrði ég HEY HEY EI HILDUR ÁFRAM HILDUR KOMA SVO!!!! Mjög hughreystandi að vita að þau öskruðu úr sér innyflunum. :):):) Ég gerði ágæta tilraun til að taka enda sprett, barðist áfram í gengnum vatnið, með erfiðleikum náði ég að gera nægilega hröð handa- og fótatök til að koma mér í bakkann, seinust að vísu en mér er nokk sama. :P Var líka þvílíkt ringluð þegar ég kom upp úr að ég var 99,9% viss að það myndi líða yfir mig, en fékk þennan leiðinlega hausverk í staðinn! :=/ Lokatíminn minn var 3:04,27 eða eitthvað og er það minna en sekúndu frá mínu besta! :o}
Ekki al slæmt, Mads sagðist hafa búist við því að ég færi á verri tíma:) og voru þau Bíbí alveg sammála að þetta hefði verið flott barátta :):):) og svona vildu þau sjá og það að þessi tími skipti litlu máli þar sem ég væri nýlega búin að vera með lungnabólgu, ég yrði bara í spriklandi formi á næsta móti!!!
Hérna er bikarsíðan sjálf og getiði fylgst með stigakeppninni og úrslitum þar!:)


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim